10.09.1913
Efri deild: 51. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (2327)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Eggerz, framsm:

Jeg hef að sinni engu við það að bæta, sem jeg tók fram við síðustu umræðu. Jeg vil nú að eins láta þá ósk í ljós, að í dag verði frv. samþykt og er jeg þá sannfærður um, að þessi dagur verður kallaður heilladagur í sögu þjóðarinnar.