10.09.1913
Efri deild: 51. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (2356)
115. mál, Reykjavíkurdómkirkja
Björn Þorláksson:
Það var aðeins örlítil athugasemd, sem jeg vildi gera út af ræðu hv. 1. kgkj. þm. Jeg fæ ekki sjeð, hvað getur verið á móti þessari tillögu, og það, sem vakir fyrir mjer með henni, er það, að sparlegar verði farið með fje kirkjunnar framvegis en hingað til. Það mundi verða gert, ef kirkjan kæmist undir umsjón biskups, og fæ jeg ekki sjeð, hvað gæti verið því til fyrirstöðu. Undir eftirliti biskups standa flestar kirkjur landsins, líka bændakirkjurnar, og landsjóðskirkjurnar ættu allar að komast líka undir umsjá hans.
Hv. 1. kgk. vill fullvissa deildina um það, að eftirlit kirkjunnar hafi verið gott, meðan hann hafði það á hendi, en jeg efast um, að svo hafi verið. Jeg er hræddur um , að honum sjálfum sje dálítið um að kenna eyðslu þá á kirkjunnar fje, sem jeg hef bent hjer á. Fyrir mjer og nefndinni vakir, að einhverjum manni, sem hægt sje að trúa, sje falin umsjá kirkjunnar og eftirlit með henni. Hv. 1. kgk. vill ekki láta safnast einn eyri (Júlíus Havsteen: Það hef jeg aldrei sagt !), en til þess er dregið saman og sparað, að hægt sje að gera við eða endurbyggja, þegar þess er veruleg þörf. Hvernig farið hefur verið með fje dómkirkjunnar, gefur grun um það, að víðar sje farið miður vel með fje landssjóðs en hjer, og að eftirlitið sje lítið.