19.07.1913
Neðri deild: 14. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (236)
61. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Flutningsm. (Skúli Thoroddsen):
Eg er hissa á mótspyrnu þeirri, þetta frumv. hefir mætt frá inum háttv. umboðam. ráðherra (gl. J.). Hún getur ekki stafað af neinu öðru en algerri vanþekkingu hana á málinu.
Hann gat þess, að hér lægi ekki fyrir álit landsímastjóra eða rannsóknir til undirbúnings. En mér er nú ekki kunnugt um, að lögin frá 22. Okt. 1912 hafi byggt á neinni ólíkri rannsókn, enda gat í það ekki verið, af því að það verður fyrst rannsakað smátt og smátt, hvað sá og sá síminn muni kosta. Ekki vissi almenningur heldur neitt um það, fyrir aukaþingið 1912, að þá myndu verða samin lög um ritsíma og talsíma, og þess vegna lá þá og ekki fyrir þinginu nein beiðni um síma til norðurhreppanna í Norður-Ísafjarðarsýslu. En eg tók það þá upp hjá sjálfum mér, af því að eg þekti þörfina, eigi síður þar en annarstaðar.
Þá gat hann þess og, að yrði síminn lagður til Látra, mundi yfir fjallveg að fara. — Mér er ekki kunnugt um að nokkur fjallgarður sé á milli Hesteyrar og Látra, nema sami fjallgarðurinn sem í leið verður, ef síminn er lagður frá Hesteyri að Stað í Aðalvík á annað borð, því að Látrar eru líka í Aðalvíkinni. Fjallgarðurinn, sem umboðsmaður ráðherra getur um, yrði þá að vera til orðinn alveg nýskeð.
7. gr. laganna frá 1912 sé eg ekki að komi þessu máli neitt við. Það er enginn að tala um að veita fé til þessa, eða framkvæma það nú þegar. Línan verður eftir sem áður 3. flokka lína, og það sem hér er farið fram á, er ekkert annað en lítilfjörleg lagfæring, sem nauðsynlegt er að gerð verði á lögunum frá 1912; vegna athugaleysisins er þá varð, eins og eg benti á í fyrri ræðu minni, enda hefði aldrei komið annað til orða en að láta símann liggja að Látrum, hefði eg náð að ráðfæra mig við kjósendur mína í Sléttuhreppi, áður en lögin voru samþykt til fullnaðar á aukaþinginu í fyrra. — En mönnum þykir nú viðkunnanlegra að fá að vita það strax, að þegar að því kemur, að síminn verði lagður, þá verði stöðin höfð þar sem hennar er mest þörf, bæði fyrir þá sem búa þar og einnig vegna annara héraða, því að þegar skip úr öllum áttum eru að fiskiveiðum við norðvesturkjálkann á sumrum og vorum, sem og eigi hvað sízt um svartasta skammdegi ársins, þá eru Látrar langhentugasti staðurinn, sem skotist verður inn á, og fæ eg því ekki öðru trúað, en að frumvarpið verði samþykt, því það, að lögin eru ný, má ekki hafa nein áhrif í gagnstæða átt, sízt þegar þinginu er nú kunnugt orðið, hvað því olli að lögin urðu svo óheppilega úr garði gerð í þessu efni, sem að hefir verið vikið.