11.09.1913
Efri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (2368)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Forseti:
Jeg hef þrátt fyrir nána yfirvegun eigi getað sannfærzt um, að skilningur minn á 61, gr. stjórnarskrárinnar væri rangur. En þar sem fordæmi eru fyrir því, að gengið hefur verið á móti hinum skýru fyrirmælum greinarinnar um upplausn þingsins án þess að að hafi verið fundið, og h. ráðherra telur víst, að það muni eigi koma að sök, þá vil jeg bera það undir h. deild, hvort afgreiða eigi stjórnarskrárfrumvarpið nú þegar eða fresta því til þingloka.