11.09.1913
Efri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)
94. mál, kosningar til Alþingis
Hákon Kristoffersson, framsögum.; Jeg þykist ekki þurfa að fara mörgum orðum um þetta frv. Það er nú aftur komið hingað frá h. Nd., sem hefur gert við það dálitlar orðabreytingar, ennfremur skelt ofan af 6. gr., sem líka lá nærri, þó við hjer gerðum það ekki. Aðalefni frv. er óskert, og nefndin leggur einhuga til, að hv. deild samþykki það óbreytt.