11.09.1913
Efri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (2382)

109. mál, forðagæsla

Sigurður Stefánsson:

Jeg var ekki viðstaddur, þegar þetta frv. var afgreitt frá deildinni, en það gleður mig, að nefndin hefur talið tiltækilegt, að taka upp í frv. flest ákvæði hinna gildandi horfellislaga, sem í sumar voru hjer í deildinni kölluð einskis nýt og ill lög. En þó hefur sumum ákvæðum horfellislaganna verið spilt. Sjerstaklega vil jeg taka það fram, að jeg er sammála háttv. þm. Barð. um, að forðagæzlumennirnir ættu altaf að vera fleiri en einn. Það getur staðið svo á, að aðeins einn maður sje í sveitinni, sem menn treysta til þessa verks, en þá er gott að skipa honum þann aðstoðarmann, sem menn telja líklegastan til þess að venjast við starfið. Ef í harðbakka slær, þá standa tveir menn betur að vígi en einn. Mjer virðist því, að hinum gildandi ákvæðum horfellislaganna, sem skipa fyrir um 2 skoðunarmenn, sje stórspilt í þessu atriði. — Þá eru daglaunin. Jeg efast ekki um, að smásálarlegar hreppsnefndir muni reyna að nota sjer það, að hægt er að koma daglaunum niður úr 2 krónum, og getur vel svo farið að enginn nýtur maður fáist til að taka að sjer starfið fyrir það kaup, sem í boði er, og þá er ver farið en heima setið. Því að þá getur vel farið svo, að starfið lendi ekki í höndum þeirra manna, sem til þess ern hæfir, heldur einhverra lúsablesa, sem enginn trúir til neins. Það er ekki feit atvinna að ferðast um heilan hrepp fyrir 2 kr. á dag, á hvaða tíma vetrar sem er. — Auðvitað má gera ráð fyrir því um þessi lög, eins og um horfellislögin, að þeim verði ekki svo vel beitt, sem skyldi. En þrátt fyrir þá agnúa, sem eru á frv. eins og það nú liggur fyrir, mun jeg þó ekki greiða atkvæði á móti því. Hitt kæmi mjer ekki á óvart, þótt innan skamms heyrðust háværar raddir móti frv., sjerstaklega móti ákvæðinu um tölu forðagæzlumanna og nirfilsákvæðinu um daglaunin.