12.09.1913
Efri deild: 53. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (2409)

92. mál, sauðfjárbaðanir

Jósef Björnsson, framsögumaður:

Eins og nefndarálitið her með sjer, leggur nefndin til, að frv. sje samþykt, eins og það liggur fyrir. Að vísu var því breytt í h. Nd., og eru þær breytingar aðallega fólgnar í tvennu. Fyrri breytingin er sú, að nú er útvegun baðlyfja lögð undir stjórnarráðið í stað þess, sem hjer í deild hafði verið ætlazt til, að búnaðarfjelag Íslands sæi um útvegun þeirra. Hin breytingin er sú, sem nefndin álítur meira um vert, að í stað þess, sem hjer í deild var ætlast til, að sjerstakir umsjónarmenn væru skipaðir með sauðfjárböðununum, er í frv. gert ráð fyrir, að hreppsnefndir og bæjarstjórnir hafi umsjónina. Þótt nefndin áliti þetta ekki jafn hyggilegt og hitt, þá leggur hún þó til, að frv. sje samþykt eins og það liggur fyrir.