12.09.1913
Efri deild: 53. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Sig. Eggerz:
Jeg ætla ekki að fara inn á skýringar á 2. gr. frv. En það hygg jeg, að bæta mætti þetta vansmiði. Það er eitt aðalatriði málsins, sem ekki hefur verið tekið fram, það er að segja, hvort veita eigi undanþágu eða ekki. Hún var eigi leyfð hjer í deild fyrir fám dögum, og sýnist mjer líklegt, að hún verði það ekki heldur nú í dag, og eins og undanþáguleyfið var felt þá, eins verði nú gert (G. B.: Það var í ógáti.) Mjer finst háttv. Nd. vera býsna djörf að taka hana aftur upp, rjett eins og hún búist við, að þessi deild muni strax heikjast yfir henni. Háttv. Nd. hefur ekki tekið okkar málum svo vel, að hún geti búizt við sjerlegri tilhliðrunarsemi hjer í deild. Háttv. 6 kgk. lagði nú, eins og á dögunum, svo mikla áherzlu á, að vjer yrðum að sýna hinni voldugu og göfugu frönsku þjóð þá tilhliðrun, að banna ekki ræðismanni hennar hjer að hafa vín á borðum, eins og hann hefði vanizt frá blautu barnsbeini. Það hefur verið marg tekið fram af honum og öðrum, að Frakkar væru kurteis þjóð, og það hefur verið sagt, að ræðismaður þeirra sje kurteisasti maður. Jeg efast ekki um, að þetta sje satt. En mjer er spurn, eigum við að sjálfsögðu að fara eftir því, þótt einhver kurteis þjóð eða kurteis maður fari fram á að fá hina eða þessa undanþágu frá bannlögunum. Væri jeg óvinveittur bannlögunum, mundi jeg kröftulega fylgja því fram, að undanþágan væri veitt. Því ef máttarstoðunum er kipt undan bannlagabyggingunni, eins og hjer á að gera, þá mun byggingin öll hrynja. Jeg legg áherzlu á, að hjer er verið að brjóta „princip“ bannlaganna, það „princip“ að leyfa eigi vínflutning til landsins. Hjer er vissri stjett manna, sendiræðismönnunum, leyft að flytja vín inn og hafa það um hönd. Jeg er viss um, að fleiri undantekningar koma á eftir, ef þessi er veitt. Jeg hef að vísu ekki mikla umgengni við „diplomata“ og kann ekki að beygja mig fyrir þeim sem vera ber; þó vildi svo til nýlega, að jeg hitti einn visikonsulinn á götu, og sagði hann mjer, að hann mundi skrifa sínu stórveldi, ef franski sendiræðismaðurinn fengi undanþáguna, og biðja það að mælast til, að hann fengi samskonar undanþágu. (G. B.: Hver var það?) Jeg vil ekki nefna nöfn nje gera mig stóran, þótt jeg umgangist ræðismenn stórveldanna. Þessi undanþága hlýtur áð skapa misrjetti og óánægju. Allir munu keppast eftir að komast í boðin hjá franska sendiræðismanninum, þar sem vín er á boðstólum, en ekki líta við boði frá enska ræðismanninum eða þýzka. Við megum vara okkur á því, að stórveldunum lendi ekki saman út af þessu. Hver má vita nema það rísi af því heilt Evrópustríð. H. 6. kgk. (G. B.) sagði, að við yrðum að fara varlega. Því ekki það? En hjer er eldurinn laus. Jeg bið guð að hjálpa okkur, þegar kanónurnar fara að syngja. En sleppum nú Evrópustríðinu. Hjer er fleira að gæta. Við vitum hvílíkur feikna máttur móðurinn er.
Það er verið að grafa undan aðflutningsbannslögunum með þessari undanþágu, og þess vegna er jeg á móti henni, og vona að svo verði og um þá hv. Goodtemplara, sem sæti eiga hjer í deildinni. Það er svo sem auðvitað, að þegar hæstv. ráðherra kemur til Hafnar, þyrpast sendiherrar linna stórveldanna um hann, og vilja tá undanþágu fyrir fulltrúa sinna þjóða, ef einu stórveldinu er veitt þessi undanþága. Nei ! Það er sannarlega ekki ókurteisi, þó að við ekki beygjum okkur.