21.07.1913
Neðri deild: 15. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í C-deild Alþingistíðinda. (243)

14. mál, vitagjald

Tryggvi Bjarnason:

Eg get ekki annað en Verið á móti breyt.till. nefnd. um að vitagjaldið verði lækkað fyrir skemtiferðaskipin. Það eru fleiri en ein ástæða, sem borin hefir verið fram til þess að réttlæta það. En aðalástæðan mun hafa verið sú, að skipin mundu hætta að koma hér víð, ef ekki yrði dregið úr gjaldinu. Koma beggja þýzku skemtiferðaskipanna, er síðast komu hér, sýnir, að á því er ekki mikil hætta. Það er er aðallega tvent, sem eg vil benda á.

Fyrst er það, að farþegarnir munu leggja mikla áherzlu á, að koma hér við, til þess að geta sent skeyti heim til vina og kunningja til að láta þá vita um líðan sína. Seinast þegar skipin komu, sendu farþegarnir 8500 bréfspjöld og 875 bréf héðan með pósti.

Annað er það, að menn þeir sem ferðast með þessum skipum, munu ekki vera í mikilli fjárþröng, eftir þeim sögum að dæma, sem ganga um verzlun þeirra hér þenna stutta tíma, sem þeir stóðu við. Það fer reyndar tvennum sögum um hana: Sumir segja að þeir hafi verzlað fyrir 7 þúsund kr., aðrir segja að það hafi verið 20 þúsund kr. En ef millivegurinn er farinn og gert ráð fyrir 14 þús. kr., verða það 18 kr. á hvern farþega, og er það ekkert smáræði þegar tillit er tekið til þess, að þeir stóðu hér við í eina tvo daga, og annar sá dagur var Sunnudagur, svo verzlunarbúðir voru lokaðar. Aðallega munu þeir hafa keypt sér sitthvað til gamans, því að geta má nærri, að slík útgerð sem þessi mun sjá farþegum sínum fyrir öllum nauðaynjum. Enn fremur keypti fjöldi þeirra sér vagna og hesta inn að Elliðaám og kostaði þá vagnsætið 5 kr., að mér er sagt.

Af þessu má sjá, að hér er ekki um neina fátæklinga að ræða, sem láta sig muna, hvort fargjaldið er 5–6 kr. hærra eða lægra. Og meira er það ekki, sem kemur niður á hvern farþega, þó að vitagjaldið sé látið haldast óbreytt og hækkað fargjaldið sem því svarar. Eg get reyndar ekki fullyrt, að fargjaldið verði hækkað af þessum ástæðum. En þó að svo verði ekki, getur — þetta vitagjald ekki verið annað en smáræði fyrir stórgróðafélag, sem hefir 12–14 miljóna kr. höfuðstól í útgerð skipsins.

Eg sé því enga ástæðu til, að draga nokkuð úr vitagjaldinu, og legg eindregið á móti því, að br.till. nefndarinnar verði samþyktar.