21.07.1913
Neðri deild: 15. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (245)

22. mál, eftirlit með fiskveiðum í landhelgi

Framsögum. (Matthías Ólafsson):

Það hefir komið fram. breytingartill. á þgskj. 100 þess efnis, að allir þeir sem fiskiveiði stunda, skuli eiga at kvæði um þetta mál, en ekki að eins þeir sem kosningarétt hafa til Alþingis.

Nefndinni hefir ekki þótt ástæða til, að taka þessa br.till. til greina. Ef hún yrði samþykt, mundi alþingiskjörskráin ekki nægja, svo að semja þyrfti aðra kjörskrá yfir þá sem hér ættu hlut að máli. En hér er ekki um þá réttarbót: að ræða, að þeir vafningar væru tilvinnandi.

Ef háttv. flutningsm. breytingartill, (B. J.) á við útgerðarmenn, sem ekki hafa náð kosningarrétti, þá er það afarsjaldgæft að þeir menn hittist, ef það kemur nokkurn tíma fyrir. En ef hann á við alla unglinga, sem á sjó fara en tillöguna má eins skilja svo —, getur það ekki talist hyggilegt að fara svo ósparlega með réttindi, hvorki í þessu máli né öðru.

Eg verð því að leggja til, bæði fyrir mína hönd og nefndarinnar, að frumvarpið verði samþykt eins og það liggur fyrir á þgskj. 99, án nokkurs tillits til breytingartillögunnar.