13.09.1913
Efri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

Þingslit

Þingslit. Forseti:

Störfum þessarar háttvirtu deildar er þá lokið að sinni. Jeg hef ekki getað gert mjer Ijóst, hversu mikið hefur verið unnið, en það hefur mikið verið, og um 670 ræður hafa verið haldnar. Og fá mál hafa dagað uppi í deildinni; þau hafa flest öll verið afgreidd, bæði frumvörp, sem komið hafa fram í deildinni, og eins frumvörp frá háttv. neðri deild.

Jeg þakka háttv. deildarmönnum sam veruna og ágæta samvinnu og umburðarlyndi við mig, sem er viðvaningur í þessu vandasama og ábyrgðarmikla starfi. Jeg lýsti því yfir í þingbyrjun, að jeg mundi reyna að rækja það sem bezt og bregðast eigi trausti yðar. Vona að mjer hafi tekizt það eftir vonum.

Samvinnan hefur verið svo góð hjer í deildinni og samkomulagið yfirleitt, að þess munu fá dæmi hjer á þingi, ef eigi eins dæmi hingað til. Væri óskandi, að það yrði eigi lengi eins dæmi, óskandi, að það væri eigi einstakt Ijósblik, heldur bjarmi af nýrri samvinnu og samkomulagsdegi hjá þjóð og þingi. Þá þjóð tel jeg í sannleika hamingjusama, er ætti það þjóðþing, þar sem samvinnuhugur og einlægur samúðarandi væri ríkjandi og gagnsýrði alt löggjafarstarfið.

Þessi deild er oft kölluð lávarðadeild — í spaugi. Jeg vildi óska, að hún ynni til þess að hún væri kölluð það í alvöru. Jeg vildi óska, að hjer ætti jafnan sæti lávarðar í orðsins bezta skilningi, sanngöfugir menn, drengir góðir, því eigi getur hjá því farið, að Iöggjafarstarf slíkra manna bæri hina blessunarríkustu ávexti fyrir land og þjóð.. Er það hjartans ósk mín og von okkar allra sameiginleg, að svo megi verða raunin á að þessu sinni.

Sá sem öllu ræður, yfirlöggjafi allra þjóða, láti lög þau og ráðstafanir, sem gerðar hafa verið hjer í sumar, verða þjóð vorri til verulegra hagsbóta og sannra heilla.