13.09.1913
Efri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (2453)
Þingslit
Guðmundur Björnsson:
Innan stundar verður alþingi slitið; enginn veit hvort aftur hittumst annað þing, og ekki vitum vjer, sem í málunum höfum staðið, hversu ráðhollir vjer reynumst landi og lýð; en hitt er víst, hæstv. forseti, að vjer eigum yður að þakka ágæta forustu; þjer hafið fengið oss dugandi ræðuritara, þeir hafa allir reynzt vel og sumir prýðisvel, og þjer hafið stjórnað öllum fundum með mikilli röggsemi.
Hafið þökk, hæstv. forseti, njótið heilsu og heilla. Þess óskum vjer að þinglausnum.