22.08.1913
Sameinað þing: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

Kosning nefndar til að úrskurða þingfararkaup alþingismanna

Forseti:

Jeg skal leyfa mjer að biðja hv. þingmenn, að kjósa 5 manna nefnd til að úrskurða þingfararkaup alþingismanna.

Fjórir listar höfðu komið fram, A, B, C og D-listi, og voru sömu nöfn í sömu röð á öllum. Enn kom fram listi frá þingmönnum efri deildar, og var hann merktur E. Var þá gengið til kosninga, og fjell kosning þannig, að A-listinn fjekk 17 atkv., C-listinn 2 og E-listinn 10 atkv., en hinir listarnir ekkert. Hlutu því kosningu :

Eggert Pálsson, A.- listi, með 17 atkv. Sigurður Sigurðsson, E-listi, með 14 atkv.

Ólafur Briem, A-listi með 81/2 atkv. Steingrímur Jónsson, E-listi, með 61/3 atkv.

Sigurður Stefánsson. A-listi, með 5 atkv. Í nefndinni var Sig. Stefánsson kosinn formaður og Ólafur Briem skrifari.