09.09.1913
Sameinað þing: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)

27. mál, vatnsveitingar

Bjarni Jónsson frá Vogi, framsögnmaður minnihluta neðri deildar:

Það má vel takast, að afgreiða þetta mál frá þinginu, og beinasti vegurinn til þess, er að brtill. á þgskj. 706 verði tekin aftur. Hún er ekki mikilvæg málinu, sem frv. á að gagna, en ef hún verður samþykt, geta þeir ekki veitt frv. fylgi sitt, sem ekki láta sig engu skifta, hvort eignarjetturinn er vettugi virtur í Iöggjöf landsins eða ekki.

Það eru til önnur ráð eins örugg að ná sama marki og eignarnámsheimildin; þau er ekki eru eins nærgöngul við eignarrjett manna og hún, og það er að taka áveitukostnaðinn lögtaki hjá eiganda og leiguliða. Ef samáveita er samþykt, og 18. gr. verður samþykt eins og hún er nú, þá fæ jeg ekki sjeð, að neinn fái varizt því, að greiða sinn hluta af kostnaðinum við samáveituna. Ef menn þverskallast við það, er hægurinn hjá að taka hann lögtaki. (Sig. Sigurðsson : Hvað er þá orðið um eignarjettinn ?). Það er mikill munur á því, hvort tekin er af mönnum heil jörð, þeir sviftir eign sinni á henni með öllu því raski, er því fylgir, eða andvirði lítilfjörlegrar upphæðar er tekið Iögtaki. Og í Iöggjöfinni á ekki að setja harðari ákvæði; en nauðsyn er á.

Það er annars einkennilegt, að frsm. meirihl: (S. Sig.), sem er búvitsmaður neðri deildar skuli bera brigður á, að það sje nokkur munur á, hvort tekin er af mönnum ein skófla eða aðrir búsmunir, eða heil jörð. Þetta þarf ekki að skýra fyrir mönnum. Sjálfur get jeg mjer látið í ljettu rúmi liggja, hvað ofan á verður. Jeg á enga fasteign, svo að jeg þarf ekki að óttast, að fyrirmælum laganna verði beitt gegn mjer. En jeg vil ekki greiða atkvæði með lögum, er hafa svo stóran vönd á lofti fyrir svo litla yfirsjón, sem hjer ræðir um.