13.09.1913
Sameinað þing: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (2484)

104. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans að gefa út (serie) bankavaxtabréfa

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Jeg ætla að leyfa mjer að segja nokkur orð út af ummælum háttv. 3. kgk. þm. (Stgr.J.). Það var eitt, sem mjer heyrðist hann ekki herma rjett í r æðu sinni. Hann sagðir að þetta 1% gjald, sem gjalda á í varasjóð í eitt sinni, yrði likt og ef 1/2% gjald væri lagt á allar fasteignir, sem veðsettar yrðu, þar sem búast mætti við að lánað yrði út á hálft virðingarverð þeirra. Jeg skal sýna, að þetta er ekki rjett. Fyrst og fremst er það fágætt, að lánað sje út á hálft virðingaverð fasteigna, og í öðru lagi er við eigendaskifti ekki ætlazt til, að hundraðsgjaldið sje heimtað at öðru en því, sem óborgað er þá af veðskuldinni, hvort sem það er mikið eða lítið. Auk þess verður sjálfsagt með þetta gjald eins og önnur gjöld, sem fasteignina snerta, það verður tekið tillit til þess við kaupin og söluna.

Eins og ýmsum fasteignasölum er hagað nú, sýnist það skaðlaust, þótt þetta gjald sje lagt á, svo sem þegar fasteign 16000 kr. virði er seld og keypt fjórum sinnum sömu vikuna, eins og dæmi eru til, og það jafnvel án þess að einn eyrir sje fyrir greiddur í peningum eða gangeyri (seðlum), heldur tóm skifti á eignum, sem taldar eru tvöfalt meira en sannvirði. Það er engin ástæða fyrir löggjafarvaldið að vera að hlynna að slíku braski.

Óþarft er gjald þetta ekki, þegar þesa er gætt, hvað það kostar að reka veðdeildirnar. Það er ekki hagur fyrir bankann, að hafa þær, hingað til hafa þær verið þung byrði fyrir hann, og getur það þó ekki verið tilætlunin.

Háttv. 3. kgk. (Stgr. J.) var mjög mótfallinn því, sem stendur í brtill. á þgskj.882, að veðdeildin hafi jafnan rjett til að greiða lánin í peningum með þeirri upphæð, sem hún getur fengið fyrir bankavaxtabrjefin, að frádregnum öllum beinum kostnaði, og áleit, að þetta væri sama sem hún fengi vald lil að borga bankavaxabrjefin því verði, sem henni þóknaðst. Þetta er ekki rjett, hún verður að borga þau því verði, sem hún sjálf getur fengið fyrir þau. Þetta er nauðsynlegt, því að reynslan sýnir, að bankavaxtabrjefin hafa verið því nær óseljandi. Eini vegurinn til að koma þeim út, er að semja um sölu bankavaxtabrjefanna fyrirfram, og það er því aðeins auðið með sæmilegu verði, að auðið sje að semja við einu og sömu stofnun um að kaupa öll bankavaxtabrjef seriunnar fyrir umsamið verð, en þá verður bankastjórnin líka að geta látið þau af hendi — öll, sem seríunni tilheyra — fyrir umsamið verð, þegar til kemur. Spurningin er því hjer þessi: Vilja menn gera bankanum mögulegt að stofna veðdeildina eða vilja menn það ekki? Ef menn vilja ekki sætta sig við þau kjör, sem veðdeildin getur boðið, eins og skilja mátti á háttv. 1. þm. Rang. (E. J.). þá er ekki um neitt að tala. En vilji menn fá peninga frá útlöndum, þá verða menn að sætta sig við þetta; og neyðarkjör eru það ekki, því að það er líklega ekkert land í heimi, þar sem fasteignaveðlán eru jafn ódýr og hjer. Háttv. 3. kgk. (Stgr. J.) vildi fella frumv., fremur en að það væri samþykt með bttill.; honum þótti ekki liggja á, þar sem í júlí hefðu verið óseld 260000 kr, af bankavaxtabrjefum, taldi það mundi nægja, þangað til næsta þing hefði afgreitt málið. Það er satt, að um þetta leyti muno hafa verið í höndum bankans veðdeildarbrjef fyrir um 260,000 kr.; en þá þegar hafði verið lofað af þeim um 100,000 kr., og nú mun ekki vera eftir ólofað nema 100,000 kr., og það er ekki meira en til að fullnægja einum tveim nokkuð stórum lánum, ef svo ber undir. Þá er alt þrotið og stöðvun komin á veðdeildarlánin. Um þetta verða háttv. þm. að hugsa og haga sjer eftir því. Menn verða líka að að athuga, að það getur liðið langur tími — ár eða meira — frá því Iögin eru samþykt á þingi og þar til búið er að koma á sölusamningi og fá fje í hendur.

Jeg skil ekki annað, en háttv: 3. kgk. (Stgr. J.) hljóti að sjá, að það er bráðnaudsynlegt, að málið fái að ganga fram á þann hátt, að auðið sé að selja veðdeildarbrjefin. Ef brtill. á þgskj. 882 er ekki samþykt, viljum vjer meðmælendur frv., að það falli, og munum greiða atkv æði móti því, því án brtill. verða lögin þýðingarlaus pappírslög, og ekki annað upp úr þeim að hafa en prentunarkostnaðinn.

Ræða háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) var þannig vaxin, að henni þarf ekki að svara fremur en vant er um það, sem hann segir. Það sýndist, sem hann hjeldi, að bankastjórarnir vildu fá þessa veðdeild til að hafa eitthvað, að gera. En jeg fullvissa háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) um, að þeir hafa meira en nóg að gera án hennar. Jeg gleymdi að minnast á það, að háttv. 3. kgk. (Stgr. J.) þótti það varhugavert, að leyfa bankastjórninni að selja bankavaxtabrjefin fyrir fram í einu lagi. Það sje jeg ekki; enda langlíklegast, eftir því, sem reynsla er fyrir, að þeir geti alIs ekki selt þau með neinu öðru móti. En með þessu móti helzt von í, að geta selt þau sæmilega. Og ekki mun háttv. 3. kgk. (Stgr. J.) þurfa að óttast, að bankastjórnin kasti þeim út fyrir gjafverð. Hjer er einungis verið að hugsa um, að bankastjórnin geti selt brjefin sem bezt, og óeani er fulltreystandi til að leitast við að gera það, enda þarf samþykki ráðherra til sðlunnar, og það hlýtur þingið að telja góða trygging. Jeg enda svo mál mitt með því, að láta í ljósi þá von, að þingið samþykki breytingartillöguna og síðan frv., eða, felli það að öðrum kosti.