21.07.1913
Neðri deild: 15. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (251)
22. mál, eftirlit með fiskveiðum í landhelgi
Bjarni Jónsson:
Það sem eg vildi sagt hafa, hefir að miklu leyti verið tekið fram. Þykir mér leiðinlegt, hve eg hefi flaustrað af breyt.till., sem eg gerði hér í sæti mínu; hefði eg þó mátt vita fyrir, að mótmæli mundu koma gegn henni.
Vil eg biðja háttv. forseta að taka málið út af dagskrá, svo eg geti komið fram með þær endurbætur á tillögunni, er þarf til þess að hún geti orðið samþykt.
Eg þakka þeim 2 háttv. þingm., sem lagt hafa breyt.till. liðsyrði og talað réttlátlega í þessu máli.
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ól.) talaði um að hleypa drengjum og óbótamönnum að kjörborðinu í sambandi við þetta. Þykir mér þessi ummæli næsta hlægileg. Eg býst við að miðað sé til greinar í stjórnarskrárfrumv., sem eg bar hér fram, en meðan þjóðin samanstendur ekki af tómum þjófum og bófum, mun ekki vera nein hætta á, að sú grein muni verða misbrúkuð.
Eg endurtek það, sem eg hefi áður sagt hér í öðru sambandi, að inir ómörkuðu þjófar munu veru hættulegri en þeir sem markaðir eru. Eg hugsa að menn geti sofnað rólegir vegna þess að þetta ákvæði muni ekki geta spilt heill þjóðarinnar. Aftur á móti væri mikið unnið, ef ef þjóðin hætti að rembast við að hefna sín á þessum vesalingum alla ævi þeirra.
Mér láðist að geta um það áðan, að með frumv. er alt kvenfólk útilokað frá atkvæðiarétti í þessum málum. Kæmi það sér mjög illa, því það er mjög algengt að konur haldi áfram útgerð eftir að menn þeirra eru látnir.
Úr því yrði bætt, ef miðað væri við koaningarrétt í sveitamálum, eins og háttv. 1. þm. S.-MÚI. (J. Ól.) stakk upp á, enda væri sú tilhögun miklum mun réttlátari, en að miðað væri við kosningarrétt til Alþingis.
Að endingu vil eg biðja háttv. forseta að líkna mér og réttlætinu og taka málið út af dagskrá.