19.08.1913
Neðri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1465 í C-deild Alþingistíðinda. (2513)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Jón Ólafsson:

Herra forseti ! Eg stend aðallega upp til að minnast á breyt.till., þá sem liggur fyrir frá okkur þingmönnum Suður-Múlasýslu. Hefi eg von um að nefndin sé henni fylgjandi. Tillagan er um að veita 1200 kr. hvort árið til sjálfrenningsferða (»Automobil«) á Fagradalsbrautinni.

Undir eins og reynsla var komin fyrir því, að sjálfrenningar gætu gengið eftir vegum okkar samkvæmt þeim tilraunum, sem gerðar höfðu verið hér fyrir sunnan í vor, vaknaði sterk hreyfing í Múlasýslum til að nota Fagradalsveginn á sama hátt og vegina hér syðra. Það var símað til okkar þingmanna Suður-Múlasýslu og við beðnir að sækja um styrk til þessa fyrirtækis; jafnframt var lofað að senda beiðni með Hólum. Hún kom í gær og er undirskrifuð af 80–90 búendum. Ætlast er til þess, að sjálfrenningurinn hafi sama þunga og sá er hefir verið hér í sumar, svo þetta er alls ekki nein tilraun. Í beiðninni var farið fram álitlegan atyrk, en ekki nefnd upphæðin. En síðan hefir komið tilboð frá Þórarni. Tuliniusi um að taka að sér ferðirnar fyrir 2000 kr. hvort árið. Við höfum farið fram á að fá 1200 kr. af þessu frá landssjóði, afganginn, 800 kr. ætlumst við til að sýslan geti borgað.

Tulinius tekur fram í skýrslu sinni, sem skal lögð fram á lestrarsalinn; að vagnarnir skuli geta flutt minst 1000 kg. í einu og verði látnir ganga á milli meðan veður og færð leyfi. Hvað flutningsgjald anerti, hafi ham ekkert á móti, að það verði bundið við samþykki stjórnarráðsins. Vagninn á fyrir utan vörur að geta flutt póst og farþega. Væru stórmikil þægindi að því, að geta fengið póst fluttan með þessum vagni, sakir þess að á sumrin eru póstferðir ákaflega strjálar milli Héraðs og hafna.

Vona eg, að þegar litið er til þessa og hve styrkurinn er lítill, taki deildin vel í málið. Hér liggur fyrir hiklaust tilboð um að vinna verkið og lítið sem þarf til að kosta af landssjóði. Það hefir verið beðið um langt um meira fé til ýmissa ferða, sem langt um minni þörf hefir verið á en þessum. Vona eg að þingið líti svo sanngjarnlega á þetta mál, að það veiti styrkinn í þetta sinn Get eg ímyndað mér að svo fari, að sýslan taki sjálf að sér ferðirnar að fjárhagstímabilinu loknu, því að eg álít fyrirtækið líklegt til að borga sig. Enn þá er engin reynsla fengin um það, en líklega verður hún fengin að tveim árum liðnum.