08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2246 í C-deild Alþingistíðinda. (2523)

93. mál, hallærisvarnir

Einar Jónsson:

Það er, eins og kunnugt er, margt, sem mælir með þessu frumvarpi. En það er líka margt, sem mælir á móti því, og eg þarf ekki »recept« frá landlækni um það, sem lesa má um liðin hallærisár í árbókunum og víðar. Þeir hafa satt að mæla, sem segja það, að hallæri getur alt af komið fyrir. En eg vil spyrja að öðru. Hver á að bjarga og borga, ef hallæri kemur nú á næstu árum, þó þingið samþykki nú þennan umrædda harðærissjóð?

Það er ekki svo að skilja, að mér sé ljúft að vera á móti þessu frv. En hér er tvent, sem rekkur sig hvað á annað. Öðrum megin er hér um það að ræða, að stofna þarflegan sjóð, og því er eg fylgjandi, en hins vegar um það, að bæta persónulegum útgjöldum á þjóðina, og það er mér meinillla við. En með þeim breytingum, sem háttv. nefnd hefir nú lagt til að gerðar verði á frv., er mér miklu nær skapi að fallast á það, en áður. Eg álít sem sé að mjög mikil bót sé að flestum breyt.till. á þgskj. 751, þótt ekki geti eg sagt svo um þær a1lar. Hitt er nú nýskeð fram komið, að fela stjórninni málið, og álít eg að vísu að það gæti verið hyggilegt og æskilegt, en það dregur málið á langinn. Og þar sem nú hafa verið góð ár að undanförnu, setti mönnum að vera minni vorkunn nú en oft endranær að hrinda þessu áleiðis.

Hvað það snertir, að málið sé litt undirbúið, þá er það að vísu satt, að það hefir ekki verið borið undir þjóðina, sem vel hefði þó mátt vera. Og þar sem það er rétt, sem tekið hefir verið fram, að sumir landshlutar eru í miklu meiri hættu fyrir harðindum en aðrir, mætti ef til vill búast við því, að undirtektirnar yrðu misjafnar. En ekki vil eg þó fara eftir því, og þótt mínu kjördæmi sé heldur vel í sveit komið, og það þurfi síður að óttast hallæri en mörg héruð önnur, þá er eg ekki eigingjarnari en svo, að eg vil ekki skorast úr leik þessvegna. Og vissi eg vilja kjósenda minna með mér, þá skyldi ekki standa á mínu atkvæði. Því að eg kannaat fyllilega við, að það er rétt, sem sagt hefir verið, að

»Feðranna dáðleysi er barnanna böl, og bölvun í nútíð er framtíðar kvöl«.

Og ánægðir værum við nú, ef forfeður vorir hefðu verið búnir að stofna slíkan sjóð áður.

Eg vil því lýsa yfir því, að þótt eg hafi Verið nokkuð móthverfur þessu frv. áður, þá er eg því nú miklu hliðhollari eftir þessar breytingar.

Mig furðaði á því, að háttv. 2. þm. Húnv. fór að tala um það, að í Rangárvallasýslu hefði fé farist í sandroki. Það er satt, en það er þó fátt, og slíkt er ekki hallæri og kemur því ekki þessu máli við, þótt nokkrar kindur farist í illviðrum og svo skaðasárir eða litlir eru Rangvellingar ekki, að þeir telji þess konar óhöpp hallæri.

Þá talaði háttv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.) um það, að ekki ætti við fyrir Rangæinga að vera á móti þessu, þar sem þeir hefðu áður beiðst hjálpar í vandræðum sínum, þegar jarðskjálftarnir gengu. Það er að vísu satt, að þeir gerðu það, en þó ekki á þann hátt, sem hér er um að ræða. Þeir báðu um lán úr landasjóði og það tekst. Það var vel gert að veita það og sýslubúar voru þakklátir fyrir. En lán úr landssjóði er ekki sama sem persónugjald frá hverjum manni, og eg er hræddur um, að Rangæingnm hefði veitt örðugra að fá þessa hjálp á þann hátt.

Eg skal svo ekki lengja umr. meira, en mun reyna að sýna það við atkvæðagreiðsluna, að eg sé sanngjarn í þessu máli.