08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2251 í C-deild Alþingistíðinda. (2525)

93. mál, hallærisvarnir

Bjarni Jónsson:

Eg vil að eins gera örstutta athugasemd við ræðu hv. 2. þm. G.-K. (Kr. D.).

Það var ekki ætlun mín, að bera það saman, hvaðan ætti að taka peningana í þessa tryggingarsjóði. Hitt vildi eg sagt hafa, að þar sem það er skylda, að tryggja ekkjur embættismanna, þá ætti það ekki siður að vera sjálfsagt, að tryggja alla þjóðina fyrir voða, enda þótt bæði eg og aðrir vilji að ekkjur eigi við góð kjör að búa.

Hann spurði, hvar væri bréf fyrir því, að ekki kæmi harðindi á næstu árum, og sagði, að þá væri sjóðurinn ónýtur. En það eru alveg jafnlítil bréf fyrir því, hve nær sem sjóðurinn er stofnaður, svo að þetta má engan fæla. Hins vegar er það víst, að hann stækkar því fyr, sem hann er fyr stofnaður. En það veit eg, að hann mundi ekki geta bjargað mönnum frá hallæri, ef svo illa vildi til, að það bæri að höndum næstu árin eftir að hann er stofnaður. Eg vildi ekki segja það, að hann hefði ekkert fyrir sig að bera í sínum mótbárum gegn frumvarpinu, eða þær væri allar jafnónýtar, sem hér hafa fram komið. Eg sagði þetta um þá eina, sem vilja halda því fram, að sjóðsstofnun þessi mundi veikja lánstraust vort. út á við. Eg skar ekki alla niður við sama trogið; og þó að eg geti ekki fallist á ástæður þessa háttv. þm., þá tel eg þær þó það betri en hitt, að eg átti alls ekki við þær, þegar eg talaði þessi hörðu orð.

Hann segir, að enginn skaði sé skeður, þótt málið biði til næstu ára, ef það þá sýnir sig, að þjóðin sé því fylgjandi. En að því er að hyggja, að töluvert mundi safnast á þeim fresti, og nú höfum vér það í höndum oss, að hrinda málinu af stað. En hitt vitum vér aldrei, hverjir kosnir verða næst, og þótt þeir heiti þá þjóðinni að fylgja þessu máli, þá er ekki vist að þeir verði svo orðheldnir, að þeim geti ekki t.d. dottið í hug að vísa málinu til stjórnarinnar, eða þá finna upp á því, að það sé ekki nógu undirbúið. Þess háttar má alt af segja. En þetta mál hefir nú verið undirbúið í 1000 ár, og það af öllum þeim öflum hér innanlands — eg á ekki við erlenda kúgara og þjófa — sem þessu landi hafa þjakað, og það ætti sannarlega að vera nokkur undirbúningur.

Eg hefði ef til vill ekki þurft að svara þessu, en af því að hv. þm. hélt, að eg hefði haft öll þessi hörðu orð um allar mátbárur gegn frumv., bæði hans og annara, þóttist eg verða að láta hann vita, að eg átti þar einungis við þessa einu firru um lánstrausts-spjöllin, og hún átti þessi ummæli sannarlega skilið.