08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í C-deild Alþingistíðinda. (2541)

104. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans að gefa út (serie) bankavaxtabréfa

Framsögum. (Björn Kristjánsson):

Háttv. þm. N. Ísf. (Sk. Th.) gekk alveg fram hjá aðalatriðinu. Eg tók það fram í fyrri ræðu minni, að hér sé verið að .búa til vöru á erlendan markað. Ef eigi er séð fyrir nægum varasjóð, þá er algerlega þýðingarlaust að bjóða bréfin fram til sölu, og með athugasemdum sínum stefnir háttv. þm. að því að girða fyrir það, að veðdeildin fái nokkurn varasjóð, sem er alveg sama sem að veðdeildarbréfin geti aldrei selst, og lántakendur ekki fengið nokkurt lán.

Háttv. þingm. sagði, að bankastjórnin liti meira á hag bankans en hag landsins. Hér er einmitt um hag landsins að ræða, þegar verið er að reyna að búa til vöru, sem sé gjaldgeng á útlendan markað. Til þess að bréfin verði seljanleg og það svo hátt, að almenningur tapi ekki meira en þessu 1%, þá nægir ekki að vér búum til lögin svo eða svo sem oss þykir haganlegasat, heldur verðum vér að gera lögin svo úr garði, að þau komi að notum. Annars er oss bezt að hætta við alt saman: Hætta að lána og leggja niður veðdeild.

Eg held, að bankastjórnin sé kunnugri en háttv. þingmaður, hvað vægast verði farið og hún hefir slegið af eins og hún sér sér fært og fram yfir það. Það er verra, að bréfin falli 2% í kurs, en að apara sér 1% í varasjóð, en það getur vel farið svo, ef umrædd 4. brtill. nefndarinnar nær ekki fram að ganga. Það er engin hegning að leggja á nýjan eiganda við eigendaskifti fasteignar 1% af eftirstöðvum lánsins, heldur miðar það ákvæði að eins að því að fá nægar tekjur í varasjóð. Eg skal leyfa mér að benda á það, að sum dönsku lánsfélögin fara lengra, þau taka 2% og þar að auki þegar skift er bréfunum, taka þau 50 aura fyrir hvert bréf. Þannig fara þau lánsfélög að því að tryggja varasjóði sína.

Þeir menn sem mæla á móti því, að séð sé nokkurn veginn fyrir varasjóði, þeir eru á móti allri veðdeildarstofnun og móti því, að leitað sé meira láns í útlöndum, því að eins og eg tók fram áðan, er ókleift að selja bréfin nema þau séu trygð á líkan hátt og annarstaðar gerist.