08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2296 í C-deild Alþingistíðinda. (2565)

114. mál, íslensk lög verði eftirleiðis aðeins gefin út á íslensku

Flutningsm. (Bjarni Jónsson):

Eg vildi frábiðja mér þær getsakir, að eg beri þetta frumvarp fram að gamni mínu. Eg ber það fram í fullri alvöru og er sannfærður um réttmæti þess. En hitt kannast eg við, að það er hart að heimta það af dómurum hæstaréttar, að þeir skilji íslenzka tungu, en þá er ráð fyrir ráðherrann að flytja hæstarétt heim. Og þótt ekki verði annað, þá trúi eg því fastlega, að ráðherra beri fram frumvarp fyrir næsta þing, um það, að Íslendingar skuli eiga sinn eiginn hæstarétt, með því að það sé óviðunandi, að hæstiréttur dæmi eftir íslenzkum lögum, en ekki á íslenzku, heldur í þýðingum, sem oft er líf og æra undir komið, hvort orð er rétt þýtt eða ekki. Hæstiréttur verður því annað hvort að afsala sér dómavaldinu, eða að dómararnir verða að læra íslenzku, eða ef léttara er, að afsala sér dómaratigninni. Þá getum við sett upp okkar eigin hæstarétt, þar sem dómararnir ekki íslenzku.

Eg er alls ekki að gera að gamni mínu, þótt mér finnist óviðfeldið að birta þessi smáu íslenzku lög í einu litlu kotungsríki. Ef menn væru neyddir til þess að þýða lögin vegna hæstaréttardómaranna, þá ætti að þýða þau á eitthvert víðlesnara mál en dönsku. Og ef málið kemur til 2. umræðu, þá skal eg breyta þessu þannig, að íslenzk lög eigi að þýða á þýzku, ensku eða frönsku, því það er þó hægt að gera ráð fyrir, að dómarar hæstaréttar skilji eitthvert þessara mála. En hitt, að prenta íslenzk lög á dönsku og birta þau í danskri þýðingu í íslenzkum stjórnartíðindum, það er svo öfugt, sem nokkuð getur öfugt heitið. Furðar mig á, hve lengi þessi ósiður hefir haldist, og ekki ætti að þurfa þingsályktun til þess að nema hann í burtu.

Þetta frumv. hefi eg ekki borið fram í þeirri vissu trú, að það yrði samþykt, heldur til þess að heyra undirtektir manna og vekja athygli manna á því, hvílíkur ósiður þetta er og vona eg það, að þetta merki undirlægjuháttar okkar Íslendinga verði afmáð af lögum þessum. Óska eg því, að málið fái að ganga til 2. umr. Og geta menn þá komið með brtill. við frumvarpið eins margar og þeim sýnist. Eða þeir menn, sem vilja vísa öllu til atjórnárinnar, geta þá gert það. Ætti stjórninni ekki að vera það ofvaxið, þegar stjórninni er falið að útvega Íslendingum siglingafána. Ætti henni þá að vera kært að koma fram þessu smámáli. Smámál er það reyndar ekki, að því leyti sem það sýnir undirlægjuhátt okkar Íslendinga gagnvart Dönum og það alveg að óþörfu.

Margir lækir smáir gera stóra á, og ef í hverjum lögum Íslendinga kemur fram á sviðið eitthvert undirlægjumerkið, sem engin nauðsyn rekur til að þar standi, þá geta þau öll í sameiningu orðið til þess, að koma því inn í meðvitund Íslendinga, að þeir sé undirlægjur Dana og geti ekki staðið á sínum eigin fótum. »Á mjóum þvengjum læra hundarnir að stela«. Fyrst er að innræta Íslendingum, að þeir séu kotungar einir og svo að telja þeim trú um það, að þeir eigi engan rétt, heldur lifi fyrir guðs og Dana náð.

Þetta mál er því stórmál, eina og öll þau mái eru, sem snerta samband okkar við aðrar þjóðir, eða réttara sagt yfirgang annarar þjóðar við okkur. Það er aldrei neitt svo smátt, að ekki megi sýna með því, að Íslendingar séu drengir góðir, sem hafi hug og þor til þess að standa á eiginn fótum. Fyrst er að sýna hugarfarið, svo er að sýna verkin, fyrst koma smáu málin og svo koma stóru málin á eftir. En ið gagnstæða má og sýna, í hve smáu sem er. Og á eftir sýna menn það svo í stórmálum. Er skemst á að minnast járnbrautarmálið, þar sem gefa átti Dönum kost á að hafa járnbraut hér austur um á kostnað og ábyrgð landssjóðs, svo að þeir gæti varið sínum eigin peningum til þess að kaupa Flóann og áveitusvæðið handa józkum bændum. Þá væri Ísland að fullu lagt undir aðra þjóð og fyrirgert þjóðerninu. Nefni eg þetta að eins til þess að leiða hugi manna að því, hvers konar fjötur má gera úr þessum mjóu þvengjum. En menn sjá þetta ekki af því að það, sem svo margt annað, liggur undir útskækjum þess fortíðarskugga, sem á oss hvílir, en þó má þurka út ef menn eru sér þess meðvitandi, að þeir þurfi, að þeir vilji ekki lengur láta þennan óheillaskugga á sér hvíla.

Skal eg svo ekki þreyta menn lengur með orðmælgi, heldur sjá til hvort málið fær að ganga til 2. umr., og ef svo verður, mun eg glaður tala við þá menn, sem okkur flutningsmönnum standa næstir, og heyra álit þeirra og gera brtill. í samráði við þá, ef stefnan helzt.