08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2298 í C-deild Alþingistíðinda. (2566)
114. mál, íslensk lög verði eftirleiðis aðeins gefin út á íslensku
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Alt sem liggur í þessu máli, er það eitt, að flutningsmennirnir eru óánægðir með það, að hæstiréttur skuli vera æðsti dómstóil landsins. Eg skil það, að menn geti verið óánægðir með það, og eg gæti því skilið frumv, ef það væri um það, að við skyldum flytja hæstarétt hingað heim, en þetta, að ekki megi löggilda danskar þýðingar á íslenzkum lögum, það skil eg ekki, svo lengi sem hæstiréttur er að lögum vor æðsti dómstóll. Að koma fram með svona frumv. er því ekki annað en að gefa sér sjálfum selbita í vasann. Það er ekki verið hér að tala um sjálfstjórn, að Íslendingar eigi sinn eigin hæstarétt, heldur er það að eins það, að íslenzk lög skuli ekki gefa út í danskri þýðing, sem till. mennirnir tala svo fagurlega um. Nú er frumv. því ekki til annars en að tefja þingtímann; ef það væri hægt að finna eina einustu ástæðu til þess að mögulegt væri að það gengi í gegn um báðar deildirnar, þá væri það sú, að með frumv. væri verið að reyna að útvega skjalþýðendum eitthvað að gera, því það er vitanlegt, að hæstiréttur verður að fá staðfesta þýðing, til að geta dæmt eftir, og yrði þá að fá hana hjá skjalaþýðendum, sem háttv. þm. Dal. (B. J) er að streitast við að lögleiða. En nú eru lög um þessa skjalaþýðendur og dómtúlka í efri deild, og veit eg það síðast um málið, að það hefir verið sett þar í nefnd, og er það spá mín, að það muni daga þar uppi. Vildi eg nú að við sýndum þessu frumv. engu minni sæmd og veittum því veglega útför, og geri eg það því að tillögu minni, að 9 manna nefnd verð sett í málið.