09.09.1913
Neðri deild: 55. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2303 í C-deild Alþingistíðinda. (2570)
92. mál, sauðfjárbaðanir
Frams.m. (Sigurður Sigurðsson):
Það hefir komið fram hér sem oftar í landbúnaðarnefndinni, að hún hefir ekki getað orðið sammála um þetta frumvarp.
Meiri hlutinn hefir lagt til að frumvarpið verði samþykt með örfáum brt., sem standa á þgsk. 733.
Í nefndaráliti meiri hlutans á þgskj. 732 er gerð grein fyrir þeim breyt.till. og er ekki þörf á að endurtaka það hér. En um 6. gr. skal eg geta þess, að meiri hluti nefndarinnar leit svo á, að engin ástæða væri til að hafa sérstaka eftirlitsmenn við þrifabaðanir, heldur væri nóg að hreppanefndir önnuðust það og að þeim væri trúandi til að leysa þetta af hendi samkvæmt þeirri væntanlegu reglugerð sem stjórnarráðið setti þar um. Eins og menn ef til muna, var samþykt í fyrra þingsályktunartillaga um að skjóta því til fjáreigenda, hvort þeir óskuðu heimildarlaga til samþykta um þrifabaðanir. Út af þessu hefir stjórnin leitað umsagna víðsvegar að, og hafa legið hér fyrir þinginu skjöl frá hreppsnefndum um þetta. Árangurinn af þessum málaleitunum er sá, að 109 hreppar hafa viljað samþykta lög, 32 hreppar hafa viljað almenn lög, en 31 hreppur hefir álitið allar baðanir óþarfar.
Í sambandi við þetta vil eg geta þess, að spurningin var að eins um heimildarlög, hvort menn vildu segja já eða nei við þeim. En eg fyrir mitt leyti verð að taka undir með nefndinni í hv. Ed. með það, að ef spurningin hefði verið orðuð þannig, hvort menn vildu þrifaböð eða ekki, þá mundu jafn margir hafa verið með því eins og þessu, enda er meiri hluti nefndarinnar og jafnvel öll nefndin á einu máli um það, að um heimildarlög geti hér verið naumast að ræða. Nú hefir dýralæknir haft þessi svör til umsagnar, og segir hann, að það að fyrirskipa heimildarlög, sé skýrning heimskunnar í þessu máli. Annað mál er það, hvort yfirleitt beri að fyrirskipa þar nokkuð, og um það hafa verið skiftar skoðanir í nefndinni.
Þar sem það hefir verið samþykt á nokkrum þingmálafundum, að æskilegt væri að fá almenn lög um þetta efni, og meiri hluti nefndarinnar er á því, að myndi í engu spilla, því verður að álitast að slík lög muni geta komið að nokkru gagni. Það er kunnugt, að þótt víða sé farið að baða sauðfé, þá eru þó margir, sem skjóta sér undan því. Nú er þetta engin þvingun fyrir þá sem baða hvort sem er, en hins vegar er það til góðs fyrir þá sem ekki vilja gera það með góðu, og meiri hlutinn álitur að ekki sé brotið í bága við persónufrelsi einstaklingsins þótt þetta sé samþykt með þeim br.till., sem standa á þgskj. 733.
Skal eg svo ekki eyða fleiri orðum að þessu, en vona að nefndin fái góðan byr að því er snertir þessar tillögur.