09.09.1913
Neðri deild: 55. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)
92. mál, sauðfjárbaðanir
Eggert Pálsson:
Eg hefi skrifað fyrirvaralaust undir nefndarálitið, en hins vegar veit nefndin það, að stuðningur minn við þetta frumvarp er þó skilyrðum bundinn, sem sé þeim, að 6. brtill. á þgskj: 733 verði samþykt. Hún fer fram á það, að losa hreppana við ið kostnaðarsama eftirlit með böðunum.
Eins og háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) tók fram, var spurningin þannig lögð fyrir, hvort menn vildu hafa heimildarlög, og því hafa 109 hreppar játað, en margir hafa tekið það skýrt fram, að þeir vildu ekki hafa óþarfa-kostnað við eftirlitið, svo að búaat má við, að ef þeir hefðu átt von á slíkum koatnaði, þá hefðu þeir ekki einu sinni viljað heimildarlög, og því síður bein og ákveðin lög.
Það hefði verið eðlilegast, þegar spurningunni var svona háttað, að samin hefðu verið heimildarlög, en ekki alt önnur lög, eins og þessi eru. En þótt eg hefði nú helzt viljað það, þá sá eg hins vegar, að tíminn var orðinn of naumur til þess að snúa þessu frumv. upp í heimildarlög, og vann eg það þá til, að ganga að þessu frumv., ef þessi eftirlitskostnaður hyrfi, því að þá hygg eg að hreppanefndirnar eða aðrir muni ekki amast við lögunum, heldur gera þau sér að góðu.
Þetta vildi eg taka fram, áður gengið er til atkvæða, að mitt atkvæði er bundið þessu skilyrði. Eins og allir sjá, er það skiljanlegt, að menn vilja ekki fara að eyða stórfé til eftirlits með þessum böðunum, sem alls ekki eru til þess gerðar að útrýma fjárkláða, heldur að eins til þess að bæta ullina og hirðing fjárins yfirleitt.
Ef baðanirnar hefðu beinlínis það markmið, að útrýma kláðanum, þá mætti segja, að nauðsyn væri á ströngu og kostnaðarsömu eftirliti, en þar sem svo er ekki — hvorki að dómi dýralæknis eða annars — sýnist það ekki nema sjálfsagt, að spara allan óþarfa-kostnað.