09.09.1913
Neðri deild: 55. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í C-deild Alþingistíðinda. (2581)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Ráðherrann (H. H.):

Eins og háttv. þingmenn hafa séð, hefi eg ekki getað verið viðataddur þessar umræður — eg þurfti að vera uppi í efri deild. Eg hafði ekki látið mér hugkvæmast, að þessi þingsályktunartillaga um nýja atkvæðagreiðslu um bannlögin ætti að notast til þess, að greiða stjórninni eitt tilræðið enn, og datt mér ekki í hug að þau óviðkomandi mál, sem þessi nýupplesna dagskrártillaga 1. þingm. Reykvíkinga hljóðar um, yrðu tekin til umræðu og ályktunar á þessum fundi, það því síður, sem eg hafði heyrt, að háttv. 1. þingm. Rvk. hefði í hyggju að bera fram fyrirspurn til stjórnarinnar um þessi tvö atriði, væntanlega til þess að fá að heyra tilsvör hennar, áður dómur væri feldur. En nú átti að nota tækifærið í fjarveru minni til þess að drífa þetta af.

Í dagskrártillögunni stendur, að landstjórnin hafi liðið innflutning áfengis til Akureyrar í fyrra og leyft innflutning til Stykkishólms í vor.

Hér getur ekki verið við annað átt, en það, að nokkrir kassar af öll, sem ætlað var til vistaforða Fálkanum, voru settir á bryggjusporð á Akureyri í fyrra og teknir þaðan aftur að vörmu spori og fluttir í Fálkann. Einhver Akureyrarbúi hafði kært þetta, sem brot á bannlögunum, fyrir lögreglustjóra. En hann kvað, sem rétt var, að þar sem hér væri um herskip að ræða, hefði hann ekki vald til að skera úr spursmálinu og vísaði málinu til stjórnarráðsins. Það svaraði svo, að það liti svo á, að flutningur áfengis til dansks herskips væri leyfilegur samkvæmt almennum þjóðarrétti.

Eg var utanlands þegar þetta gerðist, en auðvitað skiftir það ekki máli, að mér var ekki kunnugt um þetta fyr en nú fyrir nokkrum dögum, er eg frétti um væntanlega fyrirspurn háttv. 1. þm. Rvk. Það er auðvitað gert á mína ábyrgð. Afstaða stjórnarráðsins til málsins var þessi, að hér væri ekki um neina undanþágu frá bannlögunum að ræða, heldur hitt, að herskipið nyti »exterritorialitets-réttar til þess að afla sér þess vistaforða, er það á að hafa eftir sínum reglum.

Það hefir heldur ekki legið fyrir nein beiðni um undanþágu í þessa átt. Hér er því ekki að tala um neitt »leyfi« er veitt hafi verið, heldur að eins um skilning á almennum lögum, og eg verð að álíta, að stjórnarráðið sé alveg eins bært um að meta, hvað rétt er í því efni og háttv. þingdeild. Stjórnin lítur svo á, að þetta tilfelli liggi fyrir utan bannlögin og þeim skilningi ber hún lagaábyrgð á Honum verður ekki hrundið nema með dómstóla úrkurði.

Það er ekki samkvæmt stjórnarskránni að þingið fari að gera sig að hæstarétti í »juridiskum« spursmálum. Eg get því ekki séð, þótt einhverjir séu á öðru máli en stjórnin um þetta atriði, að hægt sé, formsins vegna, fyrir háttv. þingmenn að láta með þessari dagskrártillögu leggja sér dómsorð í munn í þessu máli.

Hitt atriðið í dagskrártillögunni er um innflutning áfengis til Stykkishólms, og þar er talað um »leyfi« frá stjórninni. Það liggur svo í þessu, að herdeildin, sem vann að landmælingum á Gilsfirði í sumar, hafði fengið af vistaforða hersins nokkrar flöskur af vínföngum. Þessar flöskur höfðu verið settar á tollskrá. Málið var borið undir skrifstofustjóra 1. skrifstofu, sem þá var settur landritari, vegna þess að bæði eg og landritari voru fjarverandi. Hann leit svo á, að þar sem hér væri um herdeild að ræða undir kommandó, þá kæmi hér til greina sérstakur réttur, sem bannlögin hefðu ekki gert neina breytingu á. Stjórnarráðið skoðaði þetta ekki sem inn flutning á áfengi í þeim skilningi, sem aðflutningsbannslögin banna hann. Vínið var ekki ætlað borgurum landsins né neinum þeim sem dómstólar landsins hafa lögsögu yfir, heldur herdeild, sem að vísu var hér stödd, en laut sínum sérstöku lögum, herlögunum, því vínið var engum sérstökum manni sent, heldur liðaflokknum sem slíkum. Inn setti landritari ritaði því á tollakrána, að vínið mætti láta af hendi.

Hér er heldur ekki að ræða um það, að stjórnin hafi tekið sér bessaleyfi til þess að veita undanþágu frá gildandi lögum, heldur um skilning á alþjóðarrétti. Ekki lögskýring á bannlögunum, því að tilfellið var talið fyrir utan þau. Það gildir ið sama um þetta atriði og og ið fyrra, að þingið er ekki bært um að dæma, hvort hér sé lögfræðislega réttur úrskurður feldur eða ekki. Þetta heyrir eingöngu undir úrlausn dómstólanna. Eg get því ekki séð, að nokkuð tilefni hafi verið gefið til þess að ávíta stjórnina fyrir slælegt eftirlit með framkvæmd bannlaganna.

Fyrir utan þetta verð eg að spyrja: Hvers vegna er verið að blanda svona óskyldu máli inn í þessar umræður ?

Það virðist naumast samrýmanlegt þingsköpunum, að vera að koma með slíkt inn í umræður þingsályktunariillögunnar, sem fer fram á það eitt, að þjóðaratkvæðis sé leitað um bannlögin að nýju. Það mætti alveg eins koma öllum öðrum óskyldum málum hér að, t.d. framkvæmd vörutollslaganna, eða jafnvel uppburði lotterílaganna eða öðru, sem háttv. þm. þætti atbugavert í fari stjórnarinnar. Enn er það mjög kynlegt, að háttv. þm. skyldi einmitt nota þann tíma, sem hann vissi að eg var bundinn annarstaðar, til þess að draga fram mál, sem mér gat ekki dottið í hug að farið yrði að ræða nú.

Sömuleiðis hefði það verið viðkunnanlegra af háttv. þm. að heyra fyrst svör stjórnarinnarinnar um þau atriði, sem hann vildi fá upplýst, áður en bann bæri fram tillögu til úrskurðar um þau atriði.