09.09.1913
Neðri deild: 55. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í C-deild Alþingistíðinda. (2587)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg vil að einstaka það fram, að þegar maður lea bannlögin, . þá er það sýnilegt, að þetta kemur hvergi fram í þeim. Eg met orð hæstv. ráðherra mikils, en eg met líka mikils orð og álit ýmissa annara manna, og heilbrigða skynsemi met eg mest. Bréf utanríkisráðherrana franska og úrskurður Kristjáns Jónssonar ber það með sér, að þeir hafa verið á annari skoðun um þetta, heldur en hæstv. ráðherra. Yfir það verður ekki klórað.
Sú skýring ráðherra, að það sem flutt er inn tollfrítt, sé alls ekki flutt inn, er honum ósamboðin. Áteiknunin »flytjist tollfrítt« hlýtur að þýða »flytjist inn í landið«. Annars væri »talað svart« í úrskurðinum.