11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2388 í C-deild Alþingistíðinda. (2621)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Eggert Pálsson:

Eg hefi ekki áður tekið til máls í þessu máli, enda þótt eg sé annar flutningsm. þess inn í þingið. Eg þóttist ekki sjá neina ástæðu til þess. En nú finn eg þó hvöt hjá mér til þess að fara nokkrum orðum um málið og afstöðu mína gagnvart því. Það sem olli því, að eg gerðist meðflutningsmaður þessa frumvarps, voru einmitt þær greinar frumvarpsins, sem enn standa eftir. Eg taldi eins og aðrir bannvinir, sérstaklega með tilliti til þess yfirréttardóms, sem á hefir verið minst, brýna nauðsyn til þess að fá þessa bót á aðflutningsbannslögunum. En með því að eg jafnframt varð þess vís, að það var sterk tilhneiging hjá mönnum hér á þinginu að heimila sendiræðismönnum annara ríkja að flytja inn áfengi til eigin heimilisnotkunar, þá þótti mér vel við eiga að binda þetta hvorttveggja saman í eitt frumvarp og fá þar með tilstyrk þeirra sem sterkasta tilhneiging höfðu til þess að veita þessa undanþágu, til þess að koma þeim umbótum á aðflutningsbannalögunum, er eg taldi mestu máli skifta, í gegn. Enda get eg ekki séð neitt verulegt á móti þessari undantekning hvað sendiræðismennina snertir. Tel það þvert á móti miklu betra að slík undanþága sé beinlínis leyfð í lögunum, heldur en að stjórnin sé beint á móti lögunum að veita slíka undanþágu, sem veldur svo illindum og þjarki á þinginu eins og dæmin hafa svo ljóslega sýnt. Eg býzt fullkomlega við því, að ef þessi heimild er ekki gefin nú í einhverri mynd þessum umræddu mönnum, þá geti farið svo, að þeim verði liðinn innflutningur á víni, ef ekki beinlínis leyfður, og alþjóðaréttur eða annað slíkt hafður að skálkaskjóli. Og við eigum svo von á þjarki og jafn vel vantraustsyfirlýsingu út af slíku. Þetta getum við forðast með því beinlínis að veita lagaheimild til þessarar skaðlausu undanþágu. Vegna þessa hef eg getað verið með til þess að veita þessa undanþágu og svo er enn. En með tilliti til þess, þá hallast eg aðallega að því að fara þá leiðina, sem farin er á viðaukatill. á þgskj. 792, enda veit eg að einn inn ákveðnasti bannmaður á þingi, einn háttv. þm. í Ed., hefir hallast að þeirri tillögu og má teljast höfund hennar. Oss getur sú tillaga engan miska gert. Bannlögin eru sett til þess að varðveita oss sjálfa, en eigi útlendinga, frá illum afleiðingum áfengisins. Þar sem ekki er veitt meiri heimild til innflutnings en gert er í till. á þgskj. 792, þá þarf ekki að óttast, að sú heimild verði til að ala upp í oss drykkjuskap, og það er það, sem jafnan hefir vakað fyrir oss bannmönnum. Oss hefir aldrei komið til hugar að grípa inn í lifnaðarháttu annarra þjóða. Það er heill og hamingja vorrar eigin þjóðar, en eiður annara, sem vér höfum viljað hafa og eigum að hafa fyrir augum.