11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2391 í C-deild Alþingistíðinda. (2625)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Bjarni Jónsson:
Eg stend upp til þess að láta þá skoðun mína í ljósi, að þetta frumvarp kemur ekkert bannlögunum við; það hefir engin áhrif á framkvæmd þeirra. Hér er um það eitt að ræða, að þessum mönnum sé leyft að flytja inn vin til heimilisþarfa með sama eftirliti, sem flutt er inn messuvín til kirkna, vínandi til lyfjabúða o.s.frv.
Það er alveg víst, að þessir menn geta ekki notað heimildina til þess að skemma fyrir framkvæmd bannlaganna, með því að selja, gefa eða veita vín. Ef þeir gerðu sig seka í því, mundu þeir tafarlaust verða að hverfa heim. Því er alveg hættulaust að leyfa þetta.
Sú eina ástæða, sem er til þess að veita þessa heimild, er, að önnur ríki hafa mælat til þess, að hún yrði veitt, svo að sendiræðismennirnir fengi að njóta víns eftir þeim hætti, sem bezt þykir og innan þeirra takmarka, sem velsæmistilfinning þessarar góðu þjóðar setur. Það er hart að verða ekki við þessari beiðni. Vér getum það vel án þess að sýna nokkurn undirlægjuhátt. Hér er að eins um greiða að ræða. Það er kurteisleg beiðni og einhver munur á því eða láta skipa sér hitt og þetta eða hætta við einhverja umbót vegna hótana.
Þótt hér sé um smáræði að gera, þá mundu þessar þjóðir, ef vér neituðum þessari beiðni þeirra, verða miklu ófúsari til að gera oss greiða á móti, t. d. viðurkenna siglingafána vorn, þegar þar að kemur.
Þetta er eina ástæðan og er hún nægileg.
Eg vil ekki fara að skamta þessum sendiræðismönnum í askana. Mér er alveg sama, hvort þeir drekka sig fulla eða ekki. Því er eg með þeirri tillögu, sem ekki fer fram á það, að skamta þeim vínið í pottatali, því að eina og eg tók fram í upphafi, þarf enginn að óttast það, að þessir menn fari að leggja stöðu sína í sölurnar með því að gefa vín eða selja, eina og hverir aðrir prangarar.