11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í C-deild Alþingistíðinda. (2636)

124. mál, íslenskur siglingafáni

Lárus H. Bjarnason:

Eg get ekki verið sammála háttv. þingmanni Dal. um það, að frumvarp, það er Ed. samþykti við 2. umræðu fánamálsins, hafi farið fram á svo nefndan »siglingafána«. Þarf í því efni ekki annað en að benda til nefndarálitsins þar og orðanna í frumvarpsgreininni sjálfri: »hér á landi« o. s. frv.

Eg verð að játa það, að mér finst það í rauninni nánast leikaraskapur, að Nd. feli sókn fánamálsins þeim manni, sem lagst hefir bæði móti siglinga- og landsfána við allar umræður málsinsins í báðum deildum, hefir jafnvel lýst yfir því, að hann áliti íslenzkt löggjafarvald bresta heimild til þess að löghelga ekki að eins siglingafána, heldur jafnvel landafána.

Jafnvel þótt hæstv. ráðherra hefði tungur tvær og talaði sitt með hvorri, þá væri honum manna erfiðast að koma fánamálinu fram við konung. Hann getur ekki »prokurerað« fyrir því hjá konungi, að leggja fyrir þingið frumv., sem hann hvað eftir annað hefir lagst á móti og jafnvel talið þingið bresta heimild til að samþykkja. Hér er því í rauninni ekki um annað en leik að ræða, og ætti því hvorki eg né aðrir fánamenn að koma nærri málinu, og það því síður sem óttast má, að hæstv. ráðherra hafi — með aðstoð þingm. Ísf. tekist að búa svo um hnútana, að við fáum engan íslenzkann fána í nánustu framtíð, hvorki siglingafána né landsfána. Mér þætti sem sé ekki ósennilegt, að það færi líkt um fánamálið og lotterímálið. Ekkert ólíklegt, að Danir taki til þeirra ráða, nú þegar þing þeirra kemur saman í Októbermánuði, að samþykkja frumv., sem löghelgi eitt flagg — »ríkisflagg« — fyrir alt veldi Dana. konunga, enda hefir hv. ráðherra talið danska flaggið »eina löglega« flaggið hér á landi og fánatökuna hér á höfninni 12. Júní þ. á. ómerkilegan atburð. Ráðherra og forsætisráðherrann danski hafa verið hjartanlega sammála um þetta hvorttveggja. Eg segi ekki, að háttv. ráðherra renni grun í, að svona gæti farið og því síður að hann hafi þess vegna lagst á móti fánamálinu svo fast þinginu nána, en það er ekki ósennileg: tilgáta að svona kunni að fara eftir lík afdrif lotterímálsins. Og því tjáir ekki að þræta, að ráðherra muni hafa vitað um það, hvað til atóð af hendi danska dómsmálaráðherrans í lotterímálinu, þegar hann frestaði uppburði Alþingiafrumvarpsinshaustið 1912, enda hafa 3 vitni borið það — þar á meðal einn háttv. þm., sem á sæti hér í deildinni, að hæstv. ráðherra hafi sagt á tilteknum stað og stundu í Októbermánuði í fyrra, að lotterífrumvarpið væri úr sögunni, vegna þess að Bülow dómsmálaráðherra mundi leggja fyrir ríkisdaginn lagafrumvarp, sem bannaði að reka önnur lotterí í Danmörku en þau tvö, er nú eru rekin þar, ríkislotteríið og Koloniallotteríið. Hæstv. ráðherra hefir að vísu lýst þetta »lygi«, en hann hefir ekki orðið við áskorun hr. Philippesns um það að endurtaka þetta orð utan þings, utan þinghelgi 32. gr. stjórnarskrárinnar. Hefði hæstv. ráðh. gert það, þá hefði ef til vill fengist lagaleg sönnun fyrir því, hvort ráðherra hafi vitað um frv. Bülows þegar hann frestaði Alþingisfrumvarpinu. En úr því að hr. Philipsen gafst ekki kostur á að reka af sér þetta harða ámæli af hálfu ráðherra, þá er ekki ómögulegt, að ýmsir trúi því, að hann hafi haft vitneskju um, hvað til stóð í lotterimálinu, og gæti þá hinum sömu mönnum orðið á að trúa því, að eitthvað líkt hefði ef til vill ráðið niðurlögum fánamálsins hér á þingi í sumar og enda »frestur á illu beztur«.

Þótt eg nú ekki, af fyrgreindum ástæðum, beri það traust til hæstv. ráðherra, að honum lánist að reka það erindi, sem Ed. hefir falið honum og sé þess vegna alls ekkert kappsmál um framgang tillögunnar, jafn vel breyttrar –þá hefi eg samt sem áður leyft mér að koma fram með breyt.till. við þingsályktunartill. háttv. þm. Dal. (B. J.) og fer hún fram á það, að forskeytinu »siglinga« verði slept framan af orðinn siglingafána. Eg vil ekki að þingið feli ráðherra mál, sem vonlaust er um að gangi fram og ráðherra því ef til vill gæti forsvarað að láta liggja afskiftalaust. En annara bar eg breyt.till. fram aðallega af »taktiskum« ástæðum.

Eg hjó eftir því á dagakrá Ed., að skorað er á ráðherra að leggja frumvarpið fyrir næsta »reglulegi« Alþingi — en ekki komandi aukaþing. Eg lít svo á sem orðalag þetta hefði verið valið með vilja og að meiningin muni vera sú, að halda fánamálinu utan við kosningar, þær sem óumflýjanlega leiða af samþykt stjórnarskrárfrumvarpsins.

Háttv. ráðherra hefir nú að vísu lofað því að fylgja þessu máli kappsamlega og einlæglega fram og leggja frumvarp fyrir næsta þing. En af því að dæmi eru til þess bæði hjá honum og öðrum, að sérstaklega pólitísk loforð falli í gleymsku, þá hefi eg eftir atvikum talið rétt að minna hann á Ed. loforð eitt, ef háttv. Nd. annars þykir rétt að skifta sér frekara af málinu í þetta skifti en hún hefir gert með samþ. fánafrumvarpains.

Eg tel eftir atvikum rétt, að kjósendum verði kunnar tillögur hæstv. ráðherra til H. h. konungsins um fánamálið, en það gætu þær ekki orðið, ef draga ætti að mega málið til næsta reglulegs þings. — Eg geri þetta, enda þótt eg búist við að fyrir næstu kosningar kunni að Verða fundin upp einhver púðurkerling út af fánamálinu eða öðru máli til að sprengja frammi fyrir kjósendum. Og eg þykist geta rent grun í, hver sú púðurkerling muni verða. Eg gæti trúað því, að svo gæti farið, að ráðherra létist þá vilja leggja embættið í sölurnar, í því trausti að hvellurinn af slíkri fórn gengi í fólkið, ekki sízt ef takast kynni að komast yfir öll eða flest blöð landsins svo sem viðleitni hefir verið sýnd á. Það mætti ef til vill búast við ekki litlu bergmáli af slíkri púðurkerlingu frá vel steyptum blaðahring. Það er að minsta kosti ekki ótrúlegt, að ráðherra veitist örðugra að koma fram fánamálinu við konung nú, eftir meðferð efri deildar á því, heldur en reynst mundi hafa að koma fram samþyktu fánafrumvarpi hvort heldur neðri eða efri deildar. Um það verð eg að vera samþykkur blaði, sem kom hér út í gær. Hitt er eftir að vita, hvort ekki stæði samt á »fórninni«.

Jæja, eg greiði nú samt atkvæði með þingsályktunartillögunni, gangi mín brt. fram, hvað sem aðrir kunna að gera, og þó að mér sé það ljóst, að gamall og nýr andstæðingur íslenzku litanna sé ekki vel fallinn til þess að flytja oss viðurkenningu þeirra heim. Eg hefi ekki sömu tröllatrú á hæstv. ráðherra í þessu efni og háttv. þm. Ísf. (Sig. St.) lézt hafa.