11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í C-deild Alþingistíðinda. (2645)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Framsögum. (Pétur Jónsson):

Eg geri ráð fyrir að háttv. þingmenn hafi athugað þetta frumvarp, siðan það kom frá háttv. Ed. En eg ætla þó fyrst stuttlega að taka það fram, að þótt svo virðist, sem háttv. fjárlaganefnd í Ed. hafi viljað draga úr útgjöldunum, þá hefir þó farið svo, að tekjuhallinn hefir aukist um 11 þús. kr. við meðferð hennar. Eg skal nú ekki fást mikið um þetta. Það er eðlilegt, að sú deild vilji einnig nokkru ráða um fjárlögin, og margir háttv. þm. þar hafa sjálfsagt þar ýmislegt fram að bera Vegna sinna kjördæma, sem ekki gat komið til greina í Nd. En við þessar 11 þús. kr. má eiginlega einnig bæta 20 þús. kr. til viðhalds dómkirkjunnar í Reykjavík, sem færðar hafa Verið úr 14. gr. yfir í lánagreinina. Það fé er tæplega sparað.

Eg hygg að fjárlaganefndir beggja deilda hafi sýnt það, að þær hafa haft vilja á því, að halda útgjöldunum í skefjum, þótt þær hafi báðar verið nokkuð örlátar í sumu. En þessar tilraunir þeirra hafa lítinn byr fengið. Og það er einkennilegt, að fáar af þeim till. þeirra hafa fallið, sem til gjaldauka hafa horft, en aftur á móti meiri hlutinn af þeim, sem miðað hafa til sparnaðar.

Það var einu sinni talað mikið um það, að stjórnin sem þá var, og var sú sama og nú er, væri eyðslusöm. Ef það væri sagt nú, þá hygg eg að mætti bæta því við, að fjárlaganefndirnar séu þó eyðslusamari, þar sem þær hafa báðar lagt til að hækka útgjöldin frá því sem stjórnin vildi vera láta, en að deildir þingsins séu þó eyðslusamastar af þessu þrennu. Þannig horfir þá fjárhagurinn við, nú sem stendur, og ekki mun verða hægt að kalla þetta þing sparnaðarþing. Eg ætla nú samt ekki að fara að halda langa vandlætingaræðu út af þessu, en hitt álít eg mér rétt og skylt, að vara menn við of miklu örlæti, og allra helzt við því, að fara nú á síðustu stundu að samþykkja hækkunartillögur, sem lítil líkindi eru til að muni ná samþykki í Ed., því að það er hvorki holt fyrir fjárhaginn né háttv. þm. sjálfa, að hleypa fjárlögunum í sameinað þing. Í fyrsta lagi myndi það kosta það, að lengja þyrfti þingtímann um 2 daga og það kostaði þó nokkurn kostnað. Í öðru lagi hefti það för okkar þingmanna heimleiðis, sem heima eigum langt í burtu.

Þá skal eg snúa mér að einstökum breyt.till., og kvíði eg fyrir því, að langur tími muni ganga í að tína upp alt það moð. Fyrst og fremst eru nú milli 30 og 40 breyt.till. frá nefndinni sjálfri, og þar sem þetta stutta nefndarálit kom ekki fram, fyrri en nú á fundinum, býst eg við að verða að minnast nokkuð á þær, þótt mér þyki leitt að þurfa þess. Þær eru á þgskj. 850.

1. breyt.till. er um það, að færa upp styrkinn til eftirlits með botnvörpuveiðum úr landi, úr 4500 kr. upp í 7000 kr. hvort árið. Þótt þessi upphæð, sem nú er á frumvarpinu, sé nokkru hærri en tillaga fjárlaganefndar Nd. var á sínum tíma, hefir nefndin þó leyft sér að koma fram með þessa till. eftir samkomulagi við háttv. sjávarútvegsnefnd. Það virðist nauðsyn á því, að hafa bát til slíkrar gæzlu á Eyjafirði um síldveiðatímann, og menn fullyrða að hann gæti orðið að verulegum notum. Það er búist við því, að það muni kosta 6 þús. kr., að halda honum úti um þennan tíma, og ef hann getur ekki sint öðru, þá myndi þetta Verða mjög tilfinnanleg gjaldabyrði fyrir hlutaðeigendur styrklaust.

2. breyt.till. er út af athugasemd um vatnsvirkjafræðinginn í 13. gr. B. I. 2. Háttv. Ed. hefir viljað einekorða styrkinn, sem þar er veittur, við ræktunarfyrirtæki. En það getur líka komið fyrir að nota þurfi vatnsvirki til kraftframleiðslu, t. d. rafmagns o. s. frv., og nefndin álítur heppilegast, eftir atvikum, að sameina undir þetta öll stærri fyrirtæki í þessa átt, hvort sem þau lúta að ræktun eða ekki. Þetta þarf alls ekki að koma í bága við það, að ræktunarfyrirtæki gætu notið þessarar fjárveitingar eftir þörfum, því að líklega yrðu þau látin sitja í fyrirrúmi, ef ráðist væri í nokkuð verulegt.

3. breyt.till. er um hækkun á þjóðvegafé, 6000 kr. samtals, og er ætlast til að það gangi til Eskifjarðarvegar, sem feldur var í Ed. Eg er ekki sjálfur meðmæltur þessari hækkun, en það er ætlun nefndarinnar, að fyrir þetta mætti bæta um reiðfæran veg milli Eskifjarðar og Búðareyrar í Reyðarfirði, en til þess að gera þar akfæran veg mundi þurfa 40–50 þús. kr. Eg fyrir mitt leyti álít að nú sé þegar búið að leggja til þjóðvega á þessu fjárhagstímabili það fylsta, sem má, og auk þess standi aðrir vegir nær en þessi, þar sem samgöngur milli þessara beztu hafna landsins eru aðallega á sjó. En eg geri ráð fyrir að háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) tali fyrir þessari br.till.

Næsta breyt.till. nefndarinnar er um 2 brýr, sem bætt hefir verið inn í Ed. Nefndin hefir ekki Viljað fella þessa fjárveitingu, en meiri hlutinn álítur sjálfsagt að skylda héruðin til þess að leggja eitthvað fram til móts við landssjóðastyrkinn. En nú atendur svo á, að það er ekki nema einn hreppur, sem þarna á í hlut, og þess vegna hefir nefndin ekki viljað fara fram á það, að hann leggi meira til, en það sem umfram þyrfti 6000 kr. til beggja brúanna. Eg skal geta þess, að eftir breyt.till. er fjárveitingin miðuð við seinna árið, en eftir nánara viðtal við landsverkfræðinginn hefir það komið í ljós, að ekkert er á móti því, að setja hann fyrra árið, og er á leiðinni breyt.till. frá nefndinni í þá átt. Nefndin treystir því að brýrnar verði gerðar fyllilega í samræmi við áætlun verkfræðings.

5. breyt.till. er um Fagaflóabátinn. Þegar litið er þess, hvern styrk aðrir flóabátar fá, þá munu menn sjá, að hann er ekki illa að hækkuðum styrk kominn. Okkur hefir verið sýnt, að þörfin á honum er meiri en á nokkurum hinna bátanna. Sumir nefndarmenn hafa átt kost á að kynna sér reikninga bátsins, og á þeim sést, að ekki gerir betur en að hann hangi í því að borga sig með þeim styrk sem hann hefir nú, sem sé 14. þús. kr.

6. breyt.till. fer fram á það, að kippa í samt lag aftur fjárveitingunni í 13. gr. D. III. 2. a. um starfrækslu ritsímans á stöðinni hér í Reykjavík. Eftir tillögu fjárlaganefndarinnar hér í Nd. höfðu verið hækkuð laun tveggja simastarfsmanna, Gísla J. Ólafssonar og P. Smiths. Þetta hefir Ed. feit, en nefndin vill halda fast við það, sem hér hefir verið samþykt áður um þetta.

7. brtill. er um það, að ákvæðið um kaup á núverandi símastöðvarhúsi á Akureyri verði feit burtu. Nefndin getur ekki fallist á það, að þröngva símastjórninni eða landsstjórninni til þess að kaupa þetta hús, þar sem landsímastjórinn hefir mótmælt því kröftuglega. Nefndin hefir haft þetta mál til meðferðar, og vildi þá ekkert við það eiga. Hún áleit að það ætti stjórnin að gera. En þótt nefndin vilji að þetta ákvæði falli burtu, þá vill hún hins vegar ekkert um það dæma, hvort flytja eigi stöðina úr þessu — húsi eða ekki. Eg álít fyrir mitt leyti, að hún geti vel verið þar fyrst um sinn. Eg þekki engar þær breytingar, sem geri það nauðsynlegt að flytja hana þaðan, og þótt raddir hafi heyrst í þá átt þar nyrðra, þá hafa líka heyrst aðrar raddir á móti því, og vill nefndin ekki dæma þar í milli.

Þá er eg kominn að 14. gr. Þar er 8. og 9. brtill. Viðvíkjandi háskólanum. Þar er farið fram á að færa upp aftur liðina, sem Ed. hefir klipið af, sem sé húsaleigustyrk og námsstyrk. Hér er um breytingu á stjórnarfrumv. að ræða af hálfu Ed., því að þessar fjárhæðir höfðu verið látnar óhaggaðar hér í deildinni. Nefndin lítur svo á, sem háskólanum muni vera fullörðug samkepnin við háskólann í Khöfn, þótt reynt sé eftir mætti að bæta kjör nemenda hér heima. Það er nokkurs konar neyðarvörn, svo að þar verður að ganga nokkuð langt.

Þá eru næstu breyt.till. um kennara mentaskólana. Frá þeim liðum var gengið svo hér í Nd., að þeim 3, sem lægri launin hafa, var ætluð 400 kr. persónuleg launaviðbót, en hinum 3, sem hærri laun hafa, 200 kr. Nú hefir hv. Ed. fært einn þeirra upp og ætlað honum 400 kr. viðbót, og álítur þá nefndin rétt að láta eitt yfir þá alla ganga, og að því miða þessar breyt.till. Ed. hefir líka hækkað launaviðbót 1. kennara gagnfræðaskólans á Akureyri, Þorkels Þorkelssonar, úr 200 kr. í 400 kr. Nefndin vill ekki vera að raska þessu, og þykir þá, eftir atvikum, rétt að hækka einnig laun 2. kennara við þann skóla, og sömuleiðis 2 af kennurum kennaraskólans hér í Reykjavík, sem líkt er ástatt með. Þess vegna leggur hún til, að við laun hvers þessara þriggja manna, Árna Þorvaldssonar, Björns Bjarnasonar og Ólafs Daníelssonar, sé bætt 200 kr. persónulegri launaviðbót. Þá er fengið samræmi nokkurn veginn í laun kennaranna víð þessa 3 skóla.

15. br.till. nefndarinnar lýtur að því, að Ed. hefir hækkað framlagsskilyrðið hjá kvennaskólanum í Reykjavík um 175 kr. Þessari breytingu vill nefndin kippa til baka.

Ed. hefir sett inn styrkinn til dr. Guðm. Finnbogasonar, 600 kr. hvort árið, sem upphaflega stóð í stjórnarfrv., en var feldur hér í Nd. eftir tillögu nefndarinnar. Við lögðum sem sé til, að þessi styrkur félli burt, en manninum væri aftur á móti veitt 500 kr. persónuleg launaviðbót fyrir starf hans við Landsbókasafnið. Úr því nú að hv. Ed. lítur svo á, að hann eigi að fá þennan bókastyrk, þá vill nefndin hér ekki setja sig upp á móti því, en leggur þá um leið til að hin persónul. launaviðbót hana lækki í 300 kr. og að hann fái 1800 kr. alls við Landsbókasafnið. Jafnframt leggur hún til að færa styrkinn til aðstoðar á lestrarstofunni upp um 200 kr. á ári. Nefndin hefir fengið upplýsingar um það, að maðurinn, sem gegnt hefir þessu starfi, hefir unnið við það 6 tíma á dag, 3 á salnum og 3 þess utan á safninu sjálfu. Það virðist ljóst, að 800 kr. fyrir það starf í 10 mánuði er lítil borgun, og nefndin hefir, samkvæmt till. um, er henni hafa borist utan að, fallist á að hún mætti ekki minni vera en 100 kr. á mánuði.

18. brtill. fer fram á það, að hækka laun aðstoðarskjalavarðar úr 960 kr. upp í í200 kr. Aðstoðarakjalavörður er nú, eins og kunnugt er, Hannes Þorsteinsson, fyrrum ristjóri. Honum voru ætlaðar 2500 kr. til sagnaritunar á fjárlögunum, eins og þau fóru héðan úr deildinni, en Ed. hefir fært þann styrk niður í 2000 kr. Nefndin álítur rétt að bæta þetta upp að nokkru með því að hækka laun hans við safnið.

19.–22. brtill. eru allar viðvíkjandi skáldunum. Það var látið í ljós hér, hvers vegna nefndin vildi færa þessar fjárveitingar til fyrra ársins og afnema þær síðara árið, og skal eg ekki taka þær upp aftur. En nú vill nefndin sýna að henni er þetta alvara, en ekki hitt, að færa styrki þessa niður. Einkum vakti það fyrir nefndinni, að það skyldi sjást, að engu væri slegið föstu um það, að þessir menn skyldu endilega hafa þennan styrk ævilangt. Á hinn bóginn vildi nefndin sýna það líka, að hún sæi ekki eftir að þessir menn fengju sömu upphæð á fjárhagstímabilinu, sem stjórnin hafði ætlað þeim. Það er heldur ekki sagt með þessu, að þeir geti ekki vænt styrks eftirleiðis, hvort sem hann verður þá bundinn við unnin störf eða væntanleg. Það verður undir stjórn og þingi komið.

Sama hátt vill nefndin haga því með Einar Jónsson myndhöggvara, að færa fjárveitinguna til hans á fyrra árið og minka hana dálitið í tilliti til þess, að nefndin ætlast til að hann sitji aðallega fyrir því fé, sem ætlað er til höggmyndakaupa. Þá fjárveitingu vildi nefndin ekki fella burtu þó E. J. fengi þennan styrk, en að eins lækka hana dálitið og færa hana á síðara árið.

Þá kem eg að 25. brtill., viðvíkjandi styrknum til Jóna rithöfundar Ólafssonar. Skilyrðunum fyrir þeirri styrkveitingu var að nokkru leyti breytt í Ed. það var numið burtu, að þetta væri 1. og 2. greiðsla af 8 ára styrk, og því skilyrði var bætt við, að höfundurinn skyldi skila árlega 40 örkum af bókinni fullbúnum til prentunar. Viðvíkjandi fyrra atriðinu lítur nefndin svo á, að það væri meiningarlaust að veita fé til þessa ritverks, ef það næði ekki til lengri tíma en tveggja ára. Til þess að það komi að nokkru haldi, verður maðurinn auðvitað að halda styrknum meðan hann vinnur sæmilega fyrir honum, þangað til bókin er fullgerð. Og það er gert ráð fyrir að bókinni yrði lokið eftir 7–8 ár, samkvæmt bréfi frá höfundinum, sem legið hefir fyrir nefndinni. Síðara atriðið, að höfundinum sé gert að skyldu, að skila 40 örkum af bókinni fullbúnum til prentunar á hverju ári, telur nefndin óþarflega bindandi. Stjórnarráðinu er trúandi til að hafa það eftirlit með verkinu, sem þörf er á, og þar sem maðurinn má ekki vera bundinn við önnur störf en þetta eina, má gera ráð fyrir að hann vinni sæmilega að bókinni, einkum þar sem hann á að gera stjórnarráðinu grein fyrir starfi sínu á hverju missiri. Það skilyrði hefir nefndin sett fyrir fjárveitingunni, um leið og hún færði athugasemdina að öðru leyti í samt lag.

Þá er 16. gr. Ed. hefir bætt þar við fjáveitingu til ræktunarfræðisnema. Það var ekki gert eftir tillögu nefndarinnar í Ed., heldur eftir uppástungu frá öðrum. Nefndinni er ekki vel kunnugt um, hvað við er átt með þessu. En eftir því sem hún kemst næst, á það að miða til þess að ala upp vatnsvirkjafræðing — »kulturtekniker« — sem gæti síðan tekið að sér »kulturteknisk« fyrirtæki hér á landi. Nefndin lítur svo á, að ekki sé rétt að ganga lengra í þessu efni en hún gerði síðast, með því að leggja til að einum verkfræðingi væri bætt við, er sérstaklega hefði með höndum vatnsvirkjafyrirtæki. Nefndin leggur því enn til, að við það verði látið sitja að svo stöddu; og að þessi fjárveiting Ed. verði feld burtu.

Búnaðarfélagsstjórnin hefir skrifað þinginu viðvíkjandi erindi, er borið var fram á siðasta búnaðarþingi, um að koma því til leiðar, að berklaveiki í kúm væri rannsökuð betur en verið hefir.

Það hefir legið grunur á því, bæði í Héraði austur og í Eyjafirði, að talsvert mundi vera um berklaveiki í kúm, og dýralæknirinn í Eyjafirði hefir þegar orðið einhvera var í því efni þar fyrir norðan. Þetta mál, sem er mjög svo þýðingarmikið, hefi aldrei verið ítarlega rannsakað, og því vill nefndin veita ofurlítið fé til þess, einar 300 kr. á ári. Það má vera, að þetta fé hrökkvi ekki langt, en það er þó betra en ekkert til að byrja með. Málið er svo mikils varðandi, að það er nauðsynlegt að vita vissu sína um það.

Ed. hefir felt styrkinn til iðnaðarnáma erlendis, úr 3000 kr. niður í 2500 kr. Mér er þó kunnugt um, að talsverðar umsóknir eru um þennan styrk og að hann hefir mikið gagn gert, með því að gera efnilegum mönnum fært að fullkomna sig í iðn sinni erlendis, frekara en hægt er hér á landi.

Upphaflega var það tilætlunin, að iðnaðarmannafélagið hér í Reykjavik væri stjórninni til ráðuneytis í þessu efni. En nú er það ákvæði horfið. Mér er reyndar ekki kunnugt um, hvernig samvinnan milli stjórnarinnar og Iðnaðarmannafélagsins hefir verið eða hvort nokkurt tilefni er til að svifta félagið allri hlutdeild í þessu máli. En eg get sagt það fyrir mitt leyti, að eg taldi það ákvæði heppilegt, ef það hefði getað orðið til þess, að félagið fyndi til ábyrgðarinnar, sem á því hvíldi, vegna traustsins, er þingið sýndi því. Nefndin hefir þó enga athugasemd gert við þessa styrkveitingu, en leggur að eins til, að hún verði hækkuð upp í 3000 krónur hvort árið.

Þá hefir Ed. tekið upp í frumv. 1500 kr. fjárveitingu, fyrra árið, til Þorkels Þ. Clemenz, til þess að afla sér frekari þekkingar á þurkunar-aðferðum og þeim tækjum og útbúnaði, sem notaður er til inniþurkunar. Hér er víst átt við fiskþurkun. Nefndin getur ekki fallist á að veita persónulega fjárveitingu í þessu skyni. Það hefir verið reglan, þegar um utanfararstyrki til búnaðarnáms hefir verið að ræða, að menn hafa snúið sér einungis til Búnaðarfélagsina. Þingið hefir svo, eins og kunnugt er, styrkt félagið til að geta látið eitthvað af mörkum í þessu efni. Ið sama er nú þingið farið að gera við víkjandi Fiskveiðafélaginu. En af því að nefndin lítur svo á, að það sé hæpið að þannig lagaður styrkur hafi verið tekinn í áætlun Fiskveiðafélagsins, þá leggur hún til, að þessari upphæð verði bætt við fyrra ársstyrk þess, auðvitað í því skyni, að hún verði að eins notuð til þannig lagaða fyrirtækis. Þá er það á valdi félagsins, hver valinn verður til þessa hlutverka. Þetta er eitt með öðru til þess, að losa þingið við persónulegar fjárveitingar eða ina svo nefndu bitlinga.

31. brtill. fer ekki fram á annað en að setja í samt lag aftur fjárveitinguna til að launa erindreka erlendis, er hefir með höndum sölu og útbreiðslu á íslenzkum sjávarafurðum á erlendum markaði. Þessari fjárveiting var talsvert breytt í Ed. Nefndin sér ekki ástæðu til að fallast á þá ráðabreytni efri deildar.

Brtill. sjávarútvegsnefndarinnar, um að hækka styrkinn úr 3000 kr. á ári upp í 4000 kr., er að því er upphæðina snertir Samhljóða till. nefndarinnar. Eg hefi líka heyrt, að sú tillaga sé tekin aftur, og er þá einungis um till. nefndarinnar að ræða. Sjálfur gæti eg fult eins vel felt mig við orðalagið á þessum lið, eina og það er í frumvarpinu, en nefndin er á því, að orða hann eina og gert var, er frumv. var afgreitt hér frá deildinni, með þeim litla viðauka, að tillagið annarstaðar frá megi ekki taka af fjárveitingu úr landssjóði.

32. brtill. er um lítils háttar breytingu á styrknum til ábúandans á Hrauntanga á Öxarfjarðarheiði, til þess að halda þar bygð við og veita ferðamönnum gisting og beina. Fjárveitingin er 200 kr. á ári. Eg leit svo á, að þetta væri óþarflega hár árlegur styrkur, því að þótt nauðsynlegt sé að hafa þarna gistingarstað, og geti jafnvel varðað líf manna, þá er umferðin ekki svo sérlega mikil, að það komi til mála, að miklu þurfi að koata til þess árlega. Aftur á móti eru húsakynnin þar svo léleg, að tæplega er við það unandi, þó að þeir séu ekki margir, sem bera þar að garði. Þess vegna leggur nefndin til, að styrkurinn verði færður til þannig, að 300 kr. komi á fyrra árið, og ætlast hún til, að 200 kr. af því gangi til þess að hressa kotið svo við, að hægt verði að hýsa menn í því. Það verða því 100 kr. sem koma á síðara árið.

Það er bent á það í nefndarálitinu, hvernig stjórnin geti hagað sér í þessu máli, til þess að fjárveitingin komi að góðum notum.

33. brtill. er um að færa í samt lag aftur styrkinn til mótorvagnaferðanna austur. Nefndin í Ed. lét styrkinn óhreyfðan, en hann var samt sem áður færður niður í 3500 kr. þar í deildinni. Nefndin hefir á ný talað við manninn, sem hér á hlut að máli, hr. Svein Oddason, og hefir hann tjáð henni, að hann gæti alls ekki staðið Við tilboð sitt, en yrði að draga eitthvað af því, ef styrkurinn væri lækkaður svo mikið. Jafnframt sagði hann nefndinni, að það sem aðallega hefði verið haft á móti fjárveitingunni í Ed., hefði verið bygt á misskilningi, t. d. það sem sagt var um flutningstaxtann. Hann bað að láta þess getið, að hann hefði miðað verðið, 3 aura undir pundið, við mestu fjarlægðina, austur að Ægissíðu, en það yrði að sjálfsögðu því minna, sem leiðin væri styttri. Þetta væri hæsta flutningsgjaldið, sem hann hefði hugsað sér. Enn fremur tjáði hann sig fúsan til að hafa vagna fyrir austan fjall, þann tímann sem vegurinn yfir fjallið væri ekki svo fær, að hægt væri að halda uppi reglubundnum ferðum yfir það. Þann tím. ann gæti hann þá haldið uppi ferðum frá fjallinu austur að Ölfusárbrú og Þjórsárbrú og niður á Eyrarbakka. Þetta bauðst hann til að gera, ef hann fengi að halda þeim styrk, sem nefndin ætlaði honum.

Nefndin leggur til, að hann fái að halda þeim styrk, og væntir að deildin fallist á það.

Ed. hefir sett inn í frumv. 600 kr. fjárveitingu hvort árið »til Eggerts Briem til að nema rafmagns- og vélafræði á Þýzkalandi«. Eg segi auðvitað það sama nú, sem eg lét í ljós fyrir nefndarinnar hönd, þegar tillagan um um þetta var borin upp hér í deildinni. Nefndin lítur eins á þetta mál nú, og leggur þess vegna enn til, að fjárveitingin verði feld. Það er alls ekki af því, að hún vilji rengja það, að pilturinn sé sérlega efnilegur til þessa náms. Heldur er það af hinn, að það eru einlægt að koma fram óskir um svipaðar fjárveitingar frá svo ákaflega efnilegum mönnum, og ef þingið ætti að verða við þeim öllum, þá væri örðugt að standast það. Það væri mjög útdráttarsamt fyrir landasjóðinn, ef hann ætti að styrkja alla þá efnilegu menn, sem leita til útlanda í líku skyni, á þá leið, að borga kostnaðinn víð háskólanám þeirra frá byrjun, að mestu eða öllu leyti.

Það er sérstaklega þetta, sem nefndin hefir á móti, að styrkja piltinn alt frá byrjun. Það væri öðru máli að gegna, ef hann ætti ekki nema svo sem 2 ár eða svo eftir til þess að verða fullnuma og hefði þá fengið reynslu og meðmæli frá kennurum sínum, sem alt af eru mikils virði þegar um styrkveitingar er að ræða. Af þessum ástæðum leggur nefndin til að þessi fjárveiting verði feld í burtu.

Þá kem eg að bylgjubrjótnum í Bolungarvík. Þegar málið var hér til meðferðar í deildinni, kom háttv. þingm. N.-Ísf. (Sk. Th.) fram með till. um, að veita þessa upphæð, sem nú er í frumvarpinu, og með þeim skilyrðum, sem þar eru. Nefndin lagði þá til að breyta þessu þannig, að færa upphæðina niður um helming og setja þau skilyrði, að tvöfalt fjárframlag væri lagt í móti landssjóðsstyrknum. Þetta bygði nefndin á þeirri algildu reglu, að leggja aldrei úr landssjóði til slíkra fyrirtækja meira en 1/3 af öllum kostnaðinum. Nefndin áleit þá ekki ástæðu til að hafa upphæðina hærri en þetta — 5000 kr. hvort árið. En henni var ekkert kappsmál um fjárupphæðina; það sem aðallega vakti fyrir henni, Var að halda »principinu« föstu. Eins og kunnugt er, var þessi breytingartillaga nefndarinnar feld hér í deildinni. En nefndin í Ed. var Nd. nefndinni sammála um þetta atriði. Hún vildi færa styrkinn niður, en sérstaklega var hún áfram um, að fá skilyrðunum breytt. Þetta gekk heldur ekki fram í Ed. Þó að nefndin komi nú enn fram með sömu till. um skilyrðin fyrir þessari fjárveitingu, þá dylst henni ekki, að það eru lítil líkindi til að hún gangi fram. En þar sem till. Var áður borin upp í einu lagi, þá hefir ekki komið fyllilega í ljós, hvort það er meining deildarinnar að brjóta þetta »princip«. Og það vill nefndin fá að vita. En hvað svo sem deildin gerir, þá áleit nefndin einnig rétt að sýna, að fjárlaganefndir beggja deilda myndu eftir frumreglunni og héldi fast við hana. Nú hefir háttv. þm. N.-Ísf. gert ágreiningsatkvæði um þetta atriði, eins og sjá má af framhaldsnefndarálitinu. Þar kemst hann svo að orði, ef forseti vill leyfa mér að lesa það upp:

»Brimbrjóturinn er fyrirtæki, sem miðar að því, að bjarga lífi fjölda sjómanna úr lífshættu — fyrirtæki, sem því er landinu skyldara en alt annað, og þar sem alls ekkert tillag ætti því að áskilja gegn landasjóðatillaginu«. Hér er kominn aðalkjarninn úr skoðun þingmannsins á þessu máli. Hann lítur svo á, að helzt eigi að gera þetta að öllu leyti á landssjóða kostnað, af því að það miði til þess að fyrirbyggja lífshættu. Það mætti spyrja, hvað mikið væri fyrirbygt af lífshættu, þó að þetta væri tekið eitt út af fyrir sig. Háttv. þm. N.-Ísf. getur búist við, að víðar verði að líta á lífshættur, en á þessum eina atað. Eða ætlast hann til að landssjóður kosti að öllu leyti alt, það sem á einhvern hátt miðar til að tryggja líf manna? Eiga menn ekkert að gera sjálfir til þess að forða lífi og limum? Það er þó til gamalt spakmæli, sem hljóðar svo: Hjálpaðu þér sjálfur, þá hjálpar guð þér. Þar er þó ætlast til að mennirnir leggi eitthvað frá á móti guði almáttugum. En skyldi það þá vera síður um hjálp landssjóðsins? Eg held ekki. Menn eiga fyrst að sýna, að þeir vilji hjálpa sér sjálfir, áður en þeir geti vænst hans hjálpar. Nefndin á ekki við annað með þessu skilyrði, sem hún vill setja, og það er þetta, sem réttiætir »principið« sem eg hefi haldið fram stöðugt. Það sannar líka bezt að fyrirtækið sé þarflegt, ef menn vilja sjálfir leggja eitthvað í sölurnar til þess að koma því í framkvæmd.

Ed. hefir felt í burtu eina lánsheimild, sem nefndin getur ekki séð, að nokkur ástæða hafi verið til, því að henni virðist að sú heimild hafi við fult eins mikil rök að styðjast og sumar aðrar. Það er heimild um lán úr viðlagasjóði til Rangárvallasýslu alt að 14000 kr. til að kaupa jörðina Stórólfahvol með hjáleigum fyrir læknissetur og sjúkraskýli.. Nefndin getur ekki séð, að þetta sé neitt hættufyrirtæki fyrir sýslufélagið, en lítur svo á, að það sé miklu fremur til frambúðar en hitt. Svo var það heldur engum í Ed. kappsmál að fella niður þessa lánsheimild. Hún fekk þar mikil meðmæli, en aftur á móti engin sérleg mótmæli. Nefndin hefir því gert það að tillögu sinni, að þessi lánsheimild verði tekin upp aftur.

Þá hefi eg drepið á brt. nefndarinuar og skal eg minnast á þær tillögur, sem fram hafa komið frá einstökum háttv. þm. og fara fljótt yfir sögu.

Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) fer fram á, að Hólshreppi í Norður-Ísafjarsýslu verði veittur 300 kr. styrkur til að leita lækishjálpar. Tvær slíkar fjárveitingar hafa verið settar inn í frumv. Ed., Sem nefndin hefir ekki séð sér fært að leggja til að fella. En afleiðingarnar eru þegar farnar að sýna sig. Nú kemur hver hreppurinn af öðrum og heimtar sams konar styrk. Það sæti illa á mér, ef eg kæmi ekki með slíka heiðni fyrir 1–2 hreppa í mínu kjördæmi. Að minsta kosti vil eg benda háttv. þm. N.- Þing. á 2 hreppa í hana kjördæmi, sem þannig lagaðan styrk gætu fengið Nefndin álitur þetta svo hættulegt, vegna afleiðinganna; að hún sér sér ekki fært að mæla með því.

Þá kemur háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) með veginu sinn í Austur-Skaftafellssýslu. Fjárveitingin til hana var samþykt hér í deildinni, eins og menn muna, en feld í Ed. Nefndin verður, nú sem áður, að vera á móti þeirri fjárveitingu, þar sem það er ekki einu sinni upplýst, hvar þessi vegur á að vera. Verkfræðingurinn hefir verið spurður að því, en hann ekki getað svarað því. Af þessu má geta nærri um annan undirbúning. Nefndin verður að telja það algerlega óforsvaranlegt að veits þannig fé út í bláinn, þegar þörfin kallar svo ríkt eftir víða annarstaðar, sem allur undirbúningur er í bezta lagi.

Þá kemur brt. frá háttv. þingm. G.- K. um 5000 kr. til vegarins frá Keflavík til Grindavíkur. Nefndin hefir ekki séð ástæðu til að taka brtill. til greina, og situr við sinn keip, hvað skoðun snertir því í máli.

Sama er að segja um fjárveitinguna, sem háttv. þingm. Eyf. fer fram á, um 7000 kr. til brúar á Þverá í Eyjafirði. Nefndin getur ekki heldur fallist á hana.

Þá kem eg að tillögu háttv. þriggja þingm. um, að fella niður skilyrði, það sem efri deild setti Eimskipafélagi Íslands, ef það fengi 40,000 kr. fjárveitinguna, sem sé það, að félagið taki þá að sér strandferðirnar, eigi seinna en 1916.

Mér þykir mjög leiðinlegt, að þetta atriði skuli hafa verið gert að þrætuefni hér í þinginu. En eg er sömu skoðunar sem háttv. efri deild, og hygg, að svo sé um meiri hluta nefndarinnar. En eins og eg sagði áðan, þá þykir mér það mjög leiðinlegt, að þetta skuli gert að kappsmáli, þegar ríður lífið á, að gæta eindrægni og samkomulags. Eg hefi aldrei getað komið auga á, að þetta skilyrði stæði á miklu fyrir Eimskipafélag Íslands. Mér finst það alveg óhjákvæmilegt, að félagið takist strandferðirnar á hendur, svo fljótt sem auðið er, hvað Sem þessu líður. Og nú leggur þingið alt upp í hendurnar á félaginu, sem til þess þarf. En málið horfði nokkuð öðruvís við, þegar það var hér til umræðu á dögunum, því að síðan hefir nokkuð nýtt komið fram í málinu. Þá virtust mögulegir vegir til að komast að samningum um strandferðirnar næstu tvö árin, en síðan hefir símskeytið komið frá Sameinaða gufuskipafélaginu, þar sem það lýsir yfir því, að það taki aftur tilboð eitt um strandferðirnar, ef Eimskipafélag Íslands fái styrk af landssjóði í nokkurri mynd.

Sameinaðafélagið hefir kastað hanzkanum framan í þjóðina, og eg sé ekki betur, en að Eimskipafélagið verði sóma sins vegna að taka hanzkann upp, ef það vill hafa nokkurn tilverurétt, auðvitað í samlögum við landssjóð. Ekkert félag hefir verið gylt og hylt og dýrðast með eins og þetta, og mér finst þess vegna óhjákvæmilegt að sýna nú í verkinu, að það vilji taka vald á samgöngum á sjó. Skilyrði þetta hafi því lítið að þýða til eða frá. En eg mun greiða atkvæði með því, af því að það er svo eðlilegt og sjálfsagt.

Þá vík eg að brt. háttv. þm. Borgf. (Kr. J.) um, að hækka styrkinn til Hvítárbakkaskólans ár 600 kr. í 800 kr. Nefndin hefir ekki beint fallist á þessa brtill., en gerir það þó ekki að kappsmáli. Stjórnarframv. fór fram á 600 kr., neðri deild breytti því í 800 kr., en efri deild færði það aftur niður í 600 krónur.

Þá er tillagan á þgskj. 814 frá háttv. 2. þm. G.- K. (Kr. D.) um, að landssjóður kaupi vitajörðina á Reykjanesi. Nefndin hefir ekki viljað hafa neitt á móti þessari tillögu; býst ekki við að hún skaði landssjóð.

Þá er brt. háttv. þm. N.-Ísf. (M. Ól.) um styrk til skólans á Núpi. En nefndin telur hana óþarfa, því að eins og tekið var fram við 3. umr. og í framhaldsnefndarálitinu, þá er skólanum einmitt ætlaðar óskertar 1600 kr., ef í móti kemur það sem til er akilið. (Matthías Ólafsson: Eg tek brtill. aftur, því að eg er fyllilega ánægður með skýringu nefndarinnar).

Þá er brtill. háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) um styrkveiting til dr. Helga Pjeturss, að færa hann úr 1200 kr. upp í 1500 kr., og önnur frá þm. (G.-K. um, að hækka styrkinn í 1800 kr. Í stjórnfrumv. voru upphaflega 2000 kr., en Ed. lækkaði ofan í 1200 kr. Nefndin hefir fallist á að fara meðalveginn og fylgja brt. háttv. þm. N.-Ísf.

Brtill. er frá háttv. þm. Vestm. (J. M.) um, að færa styrk Einara. Hjörleifssonar upp í 1200 kr. úr 1000 kr. Eg hefi áður talað um þær styrkveitingar, og nefndin hefir samkvæmt því ekki getað fallist á tillöguna.

Tillaga frá háttv. þm. N.-Þing. (B.Sv.) fer fram á hækkun til bifreiðaferða með því skilyrði, að bifreiðin komi við á Eyrarbakka. Ef það væri ekki framkvæmd málsins til hnekkis, getur nefndin fallist á það.

Háttv. þm. Sfjk. (V. G.) sækir um 500 kr. styrk til Heimilisiðnaðarfélagsins. Legið hefir fyrir þinginu töluvert há umsókn frá félaginu, en það er nýstofnað, og fyrsta vikið sem það gerir er að leita til landssjóða um háan styrk. Virðist sem réttara væri, að það gerði eitthvað áður en farið er að styrkja það. Þess vegna getur nefndin ekki mælt með fjárveitingunni, en gerir það þó ekki að kappsmáli um ekki stærri upphæð en hér er nefnd.

Þá sný eg mér að brtill. háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) um 800 kr. fjárveiting til að rannsaka bátalending við Ingólfshöfða í Öræfum. Það er langt frá því, að nefndin sé á móti að rannsókn verði gerð, en hún leit svo á, að auðvelt væri að gera það án teljandi aukakostnaðar, ef vitaverkfræðingi væri falið það um leið og vitinn á Ingólfshöfða er reistur. Það er hvort sem er ekki völ á öðrum en vitaverkfræðingnum til starfsins, og gæti hann þá gert það um leið, og hefir hæstv. ráðherra fallist á, að þessu mætti koma svo í kring, án teljandi aukakoatnaðar. Læt þetta þó liggja milli hluta, þó að eg geti ekki beint felt mig Við tillöguna.

Brtill. er frá háttv. þm. N.-Þing. um, að hækka styrk Guðrúnar Jónsdóttur úr 200 kr. í 300 kr. Nefndin hefir ekki séð ástæðu til að mæla með þessari breytingartillögu.

Þá er ein stór brtill. frá meiri hluta járnbrautarnefndarinnar um 18000 kr. fjárveitingu til að rannsaka járnbrautarmálið alt. Nefndin hefir ekki haft tíma til að athuga þetta nákvæmlega, en það vill svo til, að 3 menn eiga sæti í fjárlaganefndinni, sem eru í járnbrautarnefndinni. Yfir höfuð er nefndin hlynt járnbrautarmálinu og telur nauðsyn á að hlynna að því og halda því í réttu horfi. Hún hefir því fallist á, að rétt væri að sinna þessari beiðni, þó að fjárhagurinn sé nú orðinn nokkuð ískyggilegur, eftir alla þessa meðferð.

Að síðustu vildi eg enn óska þess, að þingmenn samþykki ekki neinar þær brtill., sem verða til þess að fjárlögin þurfi að koma til umræðu í sameinuðu þingi. Það yrði til þess eins, að lengja þingtímann enn af nýju, og er hann þó orðinn æðilangur.

Nefndinni berst rétt í þessu bréf frá Kaupmannaráðinu hér í Reykjavík, þar sem skorað er á hana, að hlutast til um, að Alþingi skori á stjórnina að semja við eitthvert gufuskipafélag um skipaferðir til Hamborgar, eins og árin 1910 –1912 og telur, að til þess munu þurfa 1500 kr. Bréfið er dagsett í dag og barst á þessari stundu hingað, Svo að nefndin hefir ekki haft tækifæri til að bera sig saman um þetta. Eg skal engan dóm á þetta leggja, og meiri hl. nefndarinnar er mér þar að líkindum samdóma, að fara ekki að lengja þingið og fresta umræðum nú, til þess að koma þessu að.