11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2464 í C-deild Alþingistíðinda. (2653)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Matthías Ólafsson:
Eg á hér brtill. á þgskj. 809, sem eg hygg, að eg taki aftur vegna þess að eg er búinn að fá fullnægjandi skýringar hjá háttv. framsögum., svo að eg álít ekki ástæðu til að halda henni fram. Mér þótti sú skýring, sem eg fékk fyrst, nokkuð loðin og bar þetta því undir fræðslumálastjórann, og sagði hann, að vafasamt mætti telja, hvernig ætti að skilja þetta. En nú veit eg, að skólinn fær ekki minna en 1600 kr., eina og samþ. var við 2. umr. Með það er eg ánægður og tek tillöguna aftur.
En úr því að eg stóð upp, skal eg leyfa mér að fara nokkrum orðum um brtill. háttv. þm N.-Ísf. (Sk. Th.) viðvíkjandi brimbrjótnum í Bolungarvík, og þá ályktun, sem háttv. fjárlaganefnd hefir tekið um það mál. Eg er á sama máli og háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) og háttv. þm. Dal. (B. J.) um þetta mál. Princip geta í sjálfu sér verið góð, en þau geta líka orðið gömul og úrelt (Bjarni Jónsson: Og vitlaus). Já, og vitlaus. (Jón Ólafsson: Það má ríða mestu fantareið á principum). Já, þeim má ríða reglulega fantareið. Að jafna þessu fyrirtæki við bryggjugerð er algerlega rangt, því að eins og oft hefir verið tekið fram, er þetta ekki einungis til að bjarga lífi manna, heldur og til að auka framleiðsluna að miklum. mun. Þetta er nú besta »speculation« fyrir landssjóðinn, og þó að landasjóður kostaði þetta fyrirtæki einsamall, væri það ekki nema skylt, því að það er ekki svo lítið, sem Bolungarvík er búin að færa honum frá því fyrsta.
Mér hefir komið það til hugar, að það muni aldrei þagna raddirnar um að koma þarna upp höfn, en ef því verður slegið föstu, að láta héraðið borga 2/3 hluta kostnaðarins, þá er eg hræddur um, að erfitt verði að koma umbótum á, og þá getur mikið vatn runnið í sjóinn áður en þetta kemst í framkvæmd.
Þá skal eg leyfa mér að minnast lítillega á aðra brtill. frá háttv, sama þingmanni. Það er tillagan á þgskj. 810, um að veita íbúum Hólahrepps styrk til að leita sér læknishjálpar. Þeir hafa lengi helst viljað fá sérstakan lækni, en myndu nú sætta sig við þetta.
Þetta yrði talaverð bót á böli, þar sem það er miklum erfiðleikum bundið að ná í lækni. Þetta yrði þar að auki miklu ódýrara fyrir landasjóð, heldur en að gera hreppinn að læknishéraði, og mundu héraðsbúar gera sig ánægða með þessa hjálp, þótt hún væri ekki meiri.
Eg mæli því eindregið með þessari breytingartillögu og eina með hinni, sem eg hefi talað um áður.