11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2496 í C-deild Alþingistíðinda. (2663)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Skúli Thoroddsen:
Það eru ýmis ummæli háttv. framsögumanns fjárlaganefndarinnar (P. J.), sem knýja mig til að standa upp.
Í fyrri ræðu minni fann eg mig knúðan til að segja honum til syndanna, — þ. e. vandaði þó um það, og þó með mjög hógværum orðum, að öll framkoma hans í »brimbrjóts«-málinu, eða þó síðan atkvæðagreiðslan fór fram við 2. umr. fjárlaganna, hefði verið einsdæmi.
Vandaði um það, þar sem mér duldist það eigi, að um sýnilegan hefnihug og hefnileik í minn garð var að ræða.
Honum var það óbærilegt, hve flatt hann fór í atkvæðagreiðalunni við 2. umr. fjárlaganna, þar sem heita mátti að öll deildin snerist þá gegn honum.
Hann hefir því — svo sem er æ eitt einkenni hefnihugans — verið að koma æ aftur og aftur, þ. e. verið að gera æ nýjar og nýjar tilraunir til þess að fá hefnt sín og geta. orðið málinu að ógagni.
En það er réttur þess, er um vandar við annan — og þá eigi sízt, er í kærleika er gert —, að því sé þá eigi tekið illa.
Fanst mér því eg eiga heimtingu á því, að háttv. framsögum. kannaðist þegar í einlægni við yfirsjón sína, eða þegði þó að minsta kosti við sannleikanum
Þessu átti eg þá. og því fremur heimtingu á, sem eg hafði — af ásettu ráði — viljað fara og farið sem vægast í sakirnar.
En það gerði eg af því að eg vorkendi honum, — vissi honum sannleikann sáran, og það svo, að hann þyldi eigi að heyra hann.
Vissi — sem og varð þá raunin á —, að hann færi þá á flótta, hlypi á dyr og hlýddi eigi á ræðu mína, fremur en í ritsímamálinu um daginn.
Mátti eg og vænta þess því fremur að hann væri mér þakklátur, þar sem hann mátti þó vita það, að sá var þó réttur minn — þ. e. í stað þess að vanda um við hann í kærleika —, að vera honum stórorður og napuryrtur o. s. frv.
Mátti vita, að sá var þá réttur minn, þar sem honum og öllum átti þó vissulega að skiljast það sem allra-glöggast, hvers eðlis athæfi hans var.
En í stað þess að vera honum þá harðorður eða bituryrtur, tók eg hann þá sem krakkann, sem viljandi er farið sem bezt að.
Hversu tekur hann svo þessu ! Ræðan, sem hann flutti nú síðast, voru hefniyrði á hefniorð ofan — þ e. ræðan öll þá og óslitið hefnitak.
Sýndi það þá og, að hann á bági og var vorkunn, eins og hverjum sem hefnihugur og hefnilöngun býr hjá.
Hann svaraði með alraka- og tilhæfulausum ósannindum — sagði mig hafa margoft, ef eigi einatt, greitt atkvæði gegn fjárlaganefndinni.
Vissulega veit hann það vel, að hann fer þá með það sem ásatt er.
Eg hefi — það hygg eg mig mega fullyrða — einmitt aldrei greitt atkvæði gegn fjárlaganefndinni, nema þegar eg hefi greitt svo atkvæði í nefndinni, og þá og geymt mér atkvæði mitt frjálst og óbundið, er til atkvæða í deildinni kæmi.
Þessum og öðrum hefni-yrðum framsögumannsins vísa eg því algerlega frá mér, og hefði honum vissulega verið það betra, að ótöluð hefðu verið.
Hitt átti háttv. framsögumanni á hinn bóginn minnisstætt að vera, og leitt að þykja, að þegar tillögu hans og meiri hluta fjárlaganefndarinnar var hafnað hér í deildinni við 2. umræðu fjárlaganna, og fjárveitingin til »brimbrjótsins« samþykt, því greip hann þegar svo ríkur hefnihugur, að hann horfði þá eigi í það að gera sjálfum sér þá vanvirðu, að greiða atkvæði gegn lánveitingunni til »brimbrjótsins«, þvert ofan í atkv sjálfs sín í fjárlaganefndinni rétt áður.
Bæði það, að hann horfir eigi í þetta, og svo hitt, að hann hygst nú að umturna því sem 19 menn í neðri og 8 í efri deild hafa samþykt, bendir þá og mjög glögglega til hins aðal-einkennis versta hefnihugans, að vera sá er enda alls einskis svífst er svo býður við að horfa. Í háttv. Ed. náði tillaga mín og fram að ganga, þrátt fyrir það, þó að hann réri þar undir sem hann gat.
Duldist það og hvorki mér né sumum háttv. efri deildarmönnum, að svo var sem eins konar leyniþráður lægi milli fjárlaganefnda neðri og efri deildar, eða þó öllu heldur milli hans og honum nákomins manns í Ed. og ætlaði háttv. framstigum. þannig að ríða málinu að fullu.
Háttv. framsögum. sló því enn fram, eins og svo oft í neindinni, að mál þetta væri órannsakað.
Þetta er ósatt. Málið var rækilega rannsakað, bæði af hr. Krabbe verkfræðing, sem meira að segja hefir lýst yfir því, að því meira fé sem lagt sé til fyrirtækis þessa, því betra sé það.
Þá hefir Sigurður Thoroddsen verkfræðingur einnig rannsakað »brimbrjóts«stæðið og það enn ýtarlegar en grabbe, þ. e. hefir mælt á meira dýpi o. s. frv. En mælingar og álitsskjal hefi eg því miður ekki getað náð í, enda þótt eg færi þess á leit við skrifara og framsögumann fjárlaganefndarinnar, að reynt væri að útvega plögg þessi, svo að þau yrðu lögð fram á lestrarsal Alþings til athugunar.
Veit ekki, hvað til kemur, þ. e. hvort um er að kenna ódugnaði, sem eg — er á annað er litið — vel gæti trúað, eður hitt veldur, að skrá yfir skjölin á Landskjalasafninu er enn eigi svo fullkomin, sem skyldi.
Eg veit annars ekki, hvaða mál er nægilega rannsakað, ef mál þetta er það ekki, enda hafa báðar deildir nú þegar litið svo á, sem eigi þyrfti það að verða til fyrirstöðu, og þarf eg því ekki, að fjölyrða meira um málið.
Að endingu vil eg þá gefa hv. framsögumanninum gott ráð, að hann láti ekki reiðina hlaupa með sig í gönur eða æsa sig til hefnileika, þótt svo beri við að hann fari halloka í atkvæðagreiðslu um einstaka atriði.
Hefnihugur og hefnileikir borga sig ekki, en eru öllum hættulegri en flest, ef eigi alt annað.