13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í C-deild Alþingistíðinda. (2672)

127. mál, skipun nefndar í slysfaramálum

Ráðherrann (H:

H.): Eg held það sé ekki rétt að fella þessa tillögu. Það er nauðsynlegt að taka eitt til tvö ár og rannsaka slysfarir, þær sem verða á því tímabili. Það dugir ekki að fela landsstjórninni þá rannsókn; hún þarf að vera framkvæmd af mönnum, sem sérstakan áhuga og sérstaka þekkingu hefðu á þessu máli. Eg býst ekki við, að aðalstarf þessarar nefndar yrði að að sitja á fundum, svo að kostnaðurinn setti ekki að verða ýkjamikill. Hennar aðalstarf yrði að rannsaka, hvernig á þessu og þessu alysi stæði, hverju það hefði verið að kenna og gera tillögur um, hvernig slíkum slysum yrði afstýrt í framtíðinni.

Druknanir hér á landi eru alveg óvanalega miklar. Hvergi í heiminum eru druknanir eins miklar í tiltölu við fólksfjölda. Eg er hræddur um, að þeim mönnum sem hún eru á móti þessu máli og ef til vill leiða það til fals, komi það einhvern tíma í hug í vetur og vor, þegar þeir fara að heyra um skipskaða og druknanir, að það hafi þó kannske ekki verið rétt af þeim, að vera þessari nefndarskipun mótfallnir. Enda er eg viss um, að grundvöllurinn undir þessari tillögu er réttur.