13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2515 í C-deild Alþingistíðinda. (2674)

127. mál, skipun nefndar í slysfaramálum

Matthías Ólafsson:

Eg get ekki skilið annað, en hægt væri að safna þessum skýrslum með öðru móti en setja niður milliþinganefnd til þess að safna þeim. Hagstofan ætti að geta safnað einhverju af þeim. Við höfum nú líka nýsamin lög um mannskaða skýrslur og rannsókn á fundnum líkum. Þau ættu að koma að einhverju haldi. Fiskifélag Íslands hefir umboðsmenn út um alt land; það ætti að vinna að því, að upplýsingar væri hægt að fá um mannskaða; auðvitað yrði slík rannsókn miklu ódýrari en nefndarrannsóknin, sem stæði yfir í 2 ár. En eg get ekki skilið, að hún komi að minna gagni. Og svo er enn eitt, sem mælir móti þessari nefndarskipun, og það er það, að ekkert fé er veitt til hennar á fjárlögunum.