13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2517 í C-deild Alþingistíðinda. (2678)
127. mál, skipun nefndar í slysfaramálum
Lárus H. Bjarnason:
Eg skil ekki, að ráðgerð milliþinganefnd yrði til annara en að útvega nefndarmiinnum aukatekjur.
Áður en til mála geti komið að finna ráð við því sem miður fer, þarf að safna skýrslum um öll þar að lútandi atvik. Því næst er að vinna úr skýrslunum og síðast að leita uppi ráðin. Það er fyrst nú á þessu þingi, að stofnað er til brúklegra skýrslna um mannakaða, og er því þegar af þeirri ástæðu nokkuð snemmbært að setja nefnd til að safna og vinna úr skýrslum, sem ekki eru orðnar til. Eigi nokkuð að vera byggjandi á slíkum skýrslum, Verða þær að ná til margra ára.
Hitt getur heldur ekki komið til mála, svo sem hv. ráðherra ætlast til, að fela slíkri nefnd að rannsaka, hvort druknanir og slys hefðu verið að kenna vítaverðu atferli yfirmanna skips eða skipshafna. Slíka rannsókn getur enginn framkvæmt nema hann hafi dómsvsald. Nefndin gæti ekki gert annað þar að lútandi, en að biðja stjórnarráð eða dómara að taka grunsaman atburð til rannsóknar. Og væri það nokkuð dýrt áhald, ekki sízt nú, er milliþinganefndir eru farnar að taka 8 kr. á dag fyrir hvert nefndarmannsnef.
Eg held því, að bezt sé að draga sem fyrst um á þessari nefnd.