13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2522 í C-deild Alþingistíðinda. (2682)

127. mál, skipun nefndar í slysfaramálum

Matthías Ólafsson:

Þessi milli þinganefnd mætti vera dýr til þess að eg væri ekki með henni, ef eg væri sannfærður um það, að hún gæti orðið til þess að frelsa, þó ekki væri nema eitt einasta mannslif. En það er ein mitt það sem eg er í vafa um

Háttv. þm. Dal. (B. J.) sagði, að vér hefðum gert minna en t. d. Norðmenn í þessu efni. Það er upplýst; að vér höfum einmitt gert meira en þeir og stöndum vér þó ekki eins vel að vígi eins og þeir, því að vér höfum þó ekki skerjagarð fyrir framan öll fiskimiðin til þess að hlífa oss. Að einu leyti er um vér þó eftirbátar þeirra: vér höfum enga björgunarbáta. En ekki þarf milliþinganefnd til þess að benda á það. Það er fjarri öllum sanni, að milliþingan. fái aflað betri upplýsinga um þetta efni, en dómarar. Framburður sjómannna um slíkt er oft á reiki, sem von er, en helzt mundu þeir þó segja dómaranum það sem þeir vita sannast. Hv. þm. Dal. gæti reynst það, að fara að spyrja þá um orsakirnar til einhverra slysfara og eg gæti hugsað að það færi eitthvað á þessa leið Milliþinganefndarmaður spyr: »Hver var við stýrið:«? Sjómaður svarar: »Það var Jón«. »Var það honum að kenna?« »Ónei, það held eg ekki«. En hins vegar kynni sami maður að segja við Bjarna Jónsson við annað tækifæri: »Þetta var alt því að kenna, að þessi bölvaður klaufi stýrði eins og fjósamaður«.

Eg er viss um það, að tiltölulega ferst meira af útlendingum en Íslendingum hér við land, t. d. Frökkum og Englendingum. Slys, þau er Íslendinga henda, eru mest að kenna ofurkappi þeirra. Íslendingar eru siglingaþjóð og mesta fiskiþjóð heimsins. Ekki af því, að þeir séu fisknari en aðrar þjóðir, heldur af því að þeir eru kappsamari. Það kveður svo ramt að þessu, að það er að orðtaki haft, þegar einhverjir sjást sigla glannalega: »Annað hvort eru þetta vitlausir menn, eða Íslendingar«. Mörg af slysunum munu orsakast af því, að Íslendingar hafa þann sið, að sigla, en ekki að láta reka, sem er hættuminna.

Eg geri nú ráð fyrir því, að þessi milliþinganefnd myndi nú leggja einhverjar tillögur fyrir þingið. En alveg eins má búast við því, að þingið geri sig ekki ánægt með þær. Vér höfum dæmin fyrir oss, eins og var um síðustu milliþinganefnd, þar sem tillögur hennar eru virtar að vettugi, rétt eins og það væru saman tekin ráð þingmanna að hafa þær að engu. Þegar -nú þess er gætt, að vér höfum einmitt á, þessu þingi sett lög um mannskaðaskýrslur, siglingalög og sjódómalög, þá er því minni þörf til þess að skipa sérstaka milliþinganefnd í þessu skyni, því að eins og eg tók fram í upphafi, er eg sannfærður um, að hún verður ekki til þess að bjarga lifi nokkurs manns, eða koma því til vegar, að sjóferðir verði nokkru öruggari eftir en áður.

Með þessum orðum hefi eg ekki ætlað mér að hafa áhrif á annara manna atkvæði, heldur að eins skýra málið frá mínu sjónarmiði.