22.07.1913
Neðri deild: 16. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (269)

66. mál, sveitarstjórnarlög

Flutningsm. (Stefán Stefánsson):

Það er svo ákveðið í 36. gr. sveitarstjórnarlaganna, að ekki sé heimilt að leggja aukaútsvar á verzlanir eða aðrar arðsamar stofnanir og fyrirtæki, sem ekki eru reknar fulla fjóra mánuði af gjaldárinu. Þetta hefir vakið óánægju í þeim sveitarfélögum, þar sem svo er ástatt, að verzlun er rekin um nokkurn tíma, þótt ekki sé í fulla fjóra mánuði.

Úr þessu vildi eg reyna að bæta með þessu frumvarpi, sem eg flyt eftir áskorun þingmálafundar í Svarfaðardal. En sérstaklega eru það þó íbúar Þóroddstaðahreppa í Ólafsfirði, sem kvartað hafa undan því misrétti, sem þetta fjögra mánaða ákvæði sveitarstjórnarlaganna veldur þráfaldlega. Þar hagar svo til, að helzti atvinnuvegur hreppsbúa eru fiskveiðar, og þangað safnast menn víðsvegar að, að vorinu, ekki einungis til að stunda fiskveiðar, heldur og til að að reka þar verzlun um 2–3 mánaða tíma. Þessir menn fara svo burt með verzlunararðinn án þess að hægt sé að leggja á hann aukaútsvar.

Líkt þessu hygg eg að hagi til víðar á landinu. En þetta er fullkomnasta ósamkvæmni, því að eftir sömu grein sveitarstjórnarlaganna má leggja aukaútsvar á kaupfélög og pöntunarfélög, sem hafa leyst borgarabréf, hversu stuttan tíma sem þau starfa, eða reka viðskifti innan sveitarfélagsins.

Enn fremur er í næstu grein ákveðið, að ef aðkomumaður stundar bátfiski á annara útveg en þarsveitarmanna, þá sé heimilt að leggja á hann aukaútsvar ef hann stundar veiðina 4 vikur eða lengur. Eg hefi nú litið svo á, að þar sem kaupfélög og pöntunarfélög eru útsvarsskyld, hafi þau leyst borgarabréf, þá sé ekki óréttlátt að lagt sé útsvar á verzlanir, sem reknar eru í 4 vikur eða lengur, og ið sama kemur fram, sé litið til útsvarsskyldu útvegsmannsins.

Það er vanalega í fátækum sveitum eða útkjálkahéruðum, sérstaklega, sem slíkar verzlanir eru reknar, og er það því tilfinnanlegra, að þetta misrétti skuli eiga sér stað.

Eg vona að deildin taki þessu máli vel, og vildi óska að skipuð yrði 5 manna nefnd til þess að athuga það að þessari umr. lokinni.