05.07.1913
Neðri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (29)
5. mál, tekjuskattur
Ráðherrann (H. H ):
Eins og menn muna, Var á Alþingi 1907 samþykt lög um að skipuð skyldi milliþinganefnd til þess m. a. að athuga og koma koma með tillögur um breytingu á löggjöfinni um ina föstu skatta landsins. Samkvæmt þessum lögum var því næst skipuð 5 manna nefnd með þetta aðalverkefni fyrir hendi. Þessi nefnd vann að starfi sínu bæði árin 1908 og 1909 og afhenti stjórnarráðinu aðaltillögur sinar í Októbermánuði 1908. En með því að 1909 Var fyrsta vetrarþing háð, er byrjaði þegar í Febrúarmánuði, vanst stjórnarrá.ðinu ekki tími til að undirbúa frumv. og leggja þau fyrir Alþingi. Samt Voru fram lagðar á þinginu tillögur milliþinganefndarinnar til athugunar og var svo ráð fyrir gert, að málin gætu orðið til lykta leidd á þinginu 1911.
Samt sem áður hafa aðaltill. nefndarinnar ekki verið teknar til meðferðar enn þá, jafnvel þótt ýmsar af smærri
tillögunum séu orðnar að lögum nú. Það var viðurkent þegar á þinginu 1907, og jafnvel fyr, að skattalög landsins væri, jafnvel þótt þau hefðu ef til vill verið góð á sínum tíma, orðin úrelt og svöruðu ekki til inna breyttu kringumstæðna. Þau þyrftu því að breytaat, þótt ekki væri nema til þess að fá réttlátari skiftingu á álögunum á landsmenn en verið hefir. Það leikur enginn vafi á því, að nefndin hefir lagt mikið verk í þetta mál og tillögur hennar eru vel hugsaðar og góð rök færð fyrir þeim. Samt sem áður hefir stjórnin ekki álitið rétt að leggja fram í frumv. tillögur nefndarinnar alveg óbreyttar. Stjórnin hefir fallist á tillögur nefndarinnar um að afnema ábúðarskattinn, lausafjárskattinn, tekjuskattinn og húsar skattinn, en hefir hins vegar ekki getað fallist að öllu leyti á tillögur hennar um, hverjir skattar skyldu koma í stað þeirra. Nefndin stakk upp á þremur skattaálögum í staðinn, almennum tekjuskatti, almennum fasteignaskatti og eignaskatti af allri skuldlausri eign. Stjórnarráðið leit svo á — og eg hygg að margir muni því samdóma — að jafnvel þótt þessi þrefaldi eða þrískifti skattur ef til til vill kynni að vera réttlátur í hugsuninni, þá væri hann þó nokkuð umsvifamikill í framkvæmd og gæti í aumum tilfeilum orðið ósanngjarn að leggja þrisvar skatt á sama hlutinn og innheimta hann í þrennu lagi. Stjórnin hefir því í þessu frv. slept einum af þessum aköttum, eignaskattinum. Sá skatturinn var frá kosinn af þeirri ástæðu, að stjórnarráðið leit svo á, að ekki mundi auðvelt að komast með vissu fyrir aðrar eignir en fasteignir. Reynslan um tekjuskattinn af eign hefir líka sýnt það, að þetta mun rétt álitið. Þar hefir sjaldan komið annað fram en skatturinn af jarðar-afgjöldum, enda mjög örðugt að færa sannanir um annað. Þess vegna áleit stjórnin hentugast að sleppa eignaskattinum að svo stöddu.
Með tekju- og fasteignaskattinum áleit hún líka að hægt væri að ná tilganginum, svo að trygging væri fyrir talsvert meiri jöfnuði við álögurnar en nú er, og þó dálítill tekjuauki í aðra hönd.
Eg tel óþarft að skýra nánara frá þeirri breytingu, sem stjórnin að öðru leyti hefir gert, með því að ýtarleg grein er fyrir þessu gerð í athugasemdum, þeim sem frumvarpinu fylgja, og skírskota eg til þeirra. Það er ekki unt að lýsa að fullu tekjuskattsfrumvarpinu án þess að tala um leið um fasteignarskattsfrumvarpið, því að þessir lagabálkar eiga saman, og eiga að nokkru leyti að bæta hvor úr annars ágöllum. Þannig á inn mjög svo aukni frádráttur í skattskyldum tekjum, sem leyfður er í tekjuskattsfrumvarpinu, að bæta úr því, að fasteignaskatturinn legst á eignina án tillita til veðskulda. Þannig má eftir frumv. draga frá upphæðinni, sem skatturinn er reiknaður af, vexti af öllum Veðskuldum.
Eg býst Við að nefnd verði kosin til þess að athuga þetta mál og in önnur frumvörp, sem standa í Sambandi við það. Óska eg þess, að væntanleg skattamálanefnd gefi mér kost á tækifæri til viðtals þar sem eg geti gert henni nánari grein fyrir málinu og þeim aðalatriðum, sem fyrir stjórninni hafa vakað.