05.07.1913
Neðri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í C-deild Alþingistíðinda. (32)
6. mál, skattanefndir
Ráðherrann (H. H.):
Þetta frumv. stendur í nánu sambandi Við tekjuskattsfrumvarpið, er þegar hefir verið kosin nefnd í.
Það er samið eins og hitt af skattamálanefndinni, og hefir stjórnarráðið gert að eins fáar breytingar við það.
Aðalbreyting stjórnarinnar á nefndarfrumv. er sú, að starfstími skattanefndanna hefir verið færður til, svo að skatturinn innheimtist nær þeim tíma, sem hann er miðaður við, heldur en nú gerist.
Eins og nú er ástatt, er ekki hægt að innheimta skattinn fyr en alt að tveim árum eftir að gjaldandi hefir haft þær tekjur, sem við er miðuð skattgjaldsupphæðin. Getur það oft komið sér mjög illa fyrir gjaldendur, er ef til vill hafa miklu lægri tekjur en áður,
þegar til skattgreiðslunnar kemur, og einnig valdið örðugleikum við innheimtuna. Þess vegna hafa þessar breytingar verið gerðar, og af þeim stafa ýmsar breytingar í öðrum frumv.
Enn fremur er hér sú breyting, að endurskoðunarmenn skulu hafa rétt til að heimta allar skýrslur og fá upplýsingar skattanefndar um alt, er snertir skattaálagninguna.
Er þetta sett hér í því skyni, að alstaðar Verði sömu reglum fylgt við skattaálagninguna. En eins og nú er ástatt, er því alls eigi að heilsa.
Að öðru leyti læt eg mér nægja að skírakota til athugasemdanna við nefndarfrumv. og frumv. sjálft.