25.07.1913
Neðri deild: 19. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í C-deild Alþingistíðinda. (330)
42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands
Flutnm. (Kristinn Daníelsson):
Með því að þetta mál er skylt máli, sem hér hefir Verið fyrir deildinni, nefnilega frumv. til laga um stofnun fiskiveiðasjóðs Íslands, þá vil eg leyfa mér að stinga upp á, að því verði að lokinni umræðunni vísað til sömu nefndar, sem það mál hefir með höndum.