28.07.1913
Neðri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í C-deild Alþingistíðinda. (343)

42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands

Jón Magnússon:

Það er að eins örstutt athugasemd viðvíkjandi ræðu hv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.). Hann hermdi ekki rétt orð mín, þegar hann sagði, að eg hefði álitið það yfirsjón hjá hæstv. ráðherra að bera lögin ekki upp til staðfestu. Eg sagði einmitt, að hann hefði ekki átt að gera að, þar sem þeim var mótmælt af Dönum og gripu inn á löggjafarsvið þeirra.