05.07.1913
Neðri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (35)

7. mál, fasteignaskattur

Ráðherrann (H. H.):

Við þetta frumv. hefir stjórnin að eins gert tvær aðalbreytingar.

Skattanefndin ætlaðist til, að jarðeigandi, er hefir leigt jörð sína, gæti skelt öllum skattinum yfir á leigjandann. En þetta mundi vera í mesta máta ósanngjarnt eftir að almennur tekjuakattur væri lagður á landbúnað, þannig að ábúandi svaraði skatti af tekjum sínum af búinu, eins og til er ætlast í tekjuskattslögunum. Það er sá skattur, sem kemur í staðinn fyrir núverandi ábúðar- og lausafjárskatt, sem í eðli sínu er tekjuskattur af landbúnaði, en ekki fasteignaskattur, sem er í eðli sínu eignarskattur, en ekki tekjuskattur. Hefir því í frumv. verið Stungið upp á, að landeigandi mætti ekki velta nema 1/3 hluta skattsins yfir á leiguliða án nýrra samninga.

Það virðist rétt, að jarðeigandi borgi meiri hlutann, því að öllu öðru jöfnu þola eignartekjur meiri skatt en aðrar.

Önnur breyting Stjórnarinnar er lágmark lóðarafgjalda sem hefir verið hækkað úr 100 kr. upp í 300 kr. og mun það hafa litla fjárhagslega þýðingu, en léttir hins vegar gjöldin af inum fátækari og tiltölulega miklum umsvifum af innheimtumönnum.

Annars er með þessu frumv. í fyrsta sinn lagður skattur á kaupstaðarlóðirnar, sem eigi hafa verið skattskyldar áður, og hefir þar allmikið verðmæti, sem eigendur oft hafa lítt lagt í sölurnar fyrir, sloppið undan öllu skattgjaldi.

Eg býst við að þessu frumv. Verði vísað til sömu nefndar sem hinum.