28.07.1913
Neðri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í C-deild Alþingistíðinda. (353)

3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913

Ráðherrann (H. H.):

Eg skildi ekki, hvað hv. þm, Sfjk. (V.G.) meinti með öllum þessum lestri um fjáraukalögin. Það er fyllilega leyfilegt samkvæmt stjórnarskránni, 24. gr., að gefa út fjáraukalög. Auðvitað getur það verið óheppilegt að veita fé á fjáraukalögum þegar ekkert fé er fyrir hendi. En þegar fé er til er ekkert á móti því, hvorki frá fjárhagslegu sjónarmiði eða öðru. Heldur ekki er það neinn háski, þótt stjórnin, þegar svo ber undir, veiti dálítið fé upp á væntanlega fjárveitingu eftir á. Það er meira að segja, eina og hér hagar til, þar sem fjárhagstímabilið er tvö ár, ómögulegt að komast hjá því. Og því meiri áhuga sem stjórnin hefir á öllum framkvæmdum, því meira sem hún lætur alla hagi landsins til sín taka, því fremur getur til slíks komið.

Þetta sem háttv. þingmaður sagði um gömlu dönsku stjórnina, það sýnir ekkert annað en áhugaleysi hennar, t. d. dæmið, sem hann tók um Nellemann. Ef stjórnin á að leitast við að gera alt sem hún getur landinu til þrifa, þá verður hún að hafa hugrekki til, ef svo ber undir, að verja nauðsynlegu fé, jafnvel þótt svo kunni til að bera, að nauðsynina beri að höndum milli þinga.

Viðvíkjandi fjárveitingunni til ekkjufrúar Valgerðar Jónsdóttur frá Múla, skal eg geta þess, að stjórnarráðinu var flutt beiðni þess efnis, raunar ekki skrifleg frá henni sjálfri, heldur var sótt fyrir hennar hönd. Beiðnin kom rétt í því að verið var að senda frumvarpið í prentsmiðjuna, og þar sem hér var að ræða um þekta konu, ekkju eftir þjóðkunnan merkismann, þá hikaði stjórnin sér ekki við, að taka beiðnina til greina.

Háttv. fjárlaganefnd hefir gert þá breytingu, að styrkurinn veitist að eina eitt skifti fyrir öll. Sú breyting er víst vegna nýrra upplýsinga um styrk annarstaðar frá, sem ekkjan hefir síðan fengið.

Þá skal eg segja nokkur orð um fundarhaldið í vetur. Það er rangt, að fundurinn hafi verið flokksfundur, og allar ályktanir út frá því, og alt sem háttv. þingm. (V. G.) sló föstu, er þess vegna á engum rökum bygt. Fundurinn var haldinn vegna þess, að þingið hafði falið stjórninni, með þingsályktun, erindi, sem hún varð að vinda bráðan bug að ákvörðun um. En það vildi hún ekki gera og gat, eftir því sem fastmælum hafði bundið verið, ekki gert upp á sitt eindæmi, án þess að heyra vilja sem flestra þingmanna. Þeir voru allir kallaðir, sem hægt var að ná í, nema einir þrír menn, sem ótvírætt höfðu látið í ljós, að þeir vildu ekki ganga að þeim tillögum um málið, sem menn höfðu áður komið sér saman um, og þá auðvitað ekki að tillögum um tilslakanir frá því. Því fór þó fjarri að fram hjá þeim ætti að ganga með öllu, því að þeim var skrifað, að svo framarlega sem eitthvað yrði úr þessum málaleitunum í þá átt, að menn vildu að frumvarpið væri upp tekið og lagt fyrir þjóðina, mundi þeim þegar verða boðið á fundinn til þess að taka þátt í ákvæðum um, hvenær og á hvern hátt málið skyldi borið undir þjóðina. En af því að það varð ofan á, hjá þeim sem fyrst voru boðaðir, að málið skyldi bíða, kom aldrei til þeirra hluta.

Það er engin hæfa fyrir því, að á fundinum hafi einungis verið menn úr sambandsflokknum. Eg get nefnt ýmsa háttv. þingmenn, sem á fundinn voru kvaddir, en ekki voru í sambandsflokknum og ekki hafa gengið í hann enn. T.d. háttv. þm. Borgf. (Kr. J.), háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) og háttv. 1. konungkj. (J. H.).

Þó að 9. gr. fjáraukalagafrumvarpsins verði samþykt, er þess vegna engu slegið föstu um það, að ráðherranum veitist heimild til að kalla saman flokksfundi á landssjóðs kostnað. Eg áleit þetta skyldu mína, og allir þeir þingmenn sem eg bar það undir, töldu það sjálfsagt og í samræmi við vilja meirihluta þingsins, að kostnaður við slíkan fund greiddist af landssjóði.