28.07.1913
Neðri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í C-deild Alþingistíðinda. (356)
3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Guðmundur Eggerz:
Yfirleitt get eg fyrir mitt leyti skrifað undir nefndarálitið. En það er einn liður, sem reyndar er ekki mjög stór, sem eg ætla að leyfa mér að drepa á, því hann er með öllu óþarfur, 1440 kr. til Courmont í viðurkenningarskyni fyrir að hafa kent frönsku hér í bænum undanfarin tvö ár.
Hingað til hefir skáldarófan í fjárlögunum verið alíslenzk, en nú virðist mér sem farið sé að slá á hana frönskum blæ, því eg get ekki séð annað en að þetta sé nokkurs konar skáldastyrkur.
Verð eg að segja, að mér þykir með öllu óþarft að leggja þessum franska manni í fjárlögunum, og vil eg fyrir mitt leyti ekki stuðla að því. Eg vil leggja sem minst fé í óarðberandi fyrirtæki, og við getum þó allir orðið sammála um, að ekki muni vera mikill hagnaður að þessari frönskukenslu. Franska er að vísu fínt mál, en vér lærum líka frönsku austur á fjörðunum. Lízt mér ekki á, ef vér eigum að fara að fá t. d. styrkbeiðnir frá öllum frönskum skipstjórum á Fáskrúðafirði, sem kent hafa mönnum þar eystra þetta mál.
Eg er þannig á móti því að Courmont verði veittur þessi styrkur.