28.07.1913
Neðri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (359)
3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Bjarni Jónsson:
Það hefir nú borið við, sem sjaldan verður, að eg er ósammála háttv. þingm. Sfjk. (V.G.). Lagði hann áherzlu á það, sem og var rétt, að stjórninni bæri ekki að veita fé á fjáraukalögunum, sem ekki hefir verið heimilað í sjálfum fjárlögunum. En stjórninni kemur ekki við, hvað þingið vill veita.
Það er líka sitt hvað, að stjórnin leggi til, að veitt sé fé úr landssjóði, og að hún borgi það sjálf út áður en samþykki Alþingis er fengið.
Fyrir mitt leyti verð eg að játa, að að mín reysla er sú, að stjórnir, þær sem eg hefi þekt, hafa verið sparar á að veita fé úr landssjóði án þess að leyfi Alþingis væri fengið.
Stjórnir, þær sem eg hef unnið undir, hafa ekki viljað samþykkja að veita lítilfjörlegar upphæðir til að senda sýnishorn af íslenzkum afurðum á útlendan markað. Það er fyrst stjórn, sú sem nú situr að völdum, sem hefir ráðist í að greiða kostnaðinn við að senda sýnishorn af kjöti til Þýzkalands upp á væntanlegt samþykki Alþingis. Hér er þó um atriði að ræða, sem beinlínis snertir hag landsins. Það sýnist því ekki ástæða til að telja það veitt að óþörfu.
Það var líka háttv. sami þm , sem vildi gera svo mikið upp á milli ferðarinnar til ólympisku leikanna í Stokkhólm og ferðarinnar til kvennamótsins í Buda-Pest. Finst mér það algerlega rangt, því að stjórnin gat alls eigi litið öðrum augum á íþróttamótið, en kvennasamkomuna. Að vísu mun íþróttamótið vekja meiri athygli manna út um heim, en hins vegar var þetta alþjóðafundur kvenna og hefir oss eigi fyr gefist kostur á að senda fulltrúa til slíks fundar.
Eg er einn þeirra manna, sem halda því fram, að kvenfólkið eigi að hafa fult jafnrétti við karlmenn. Tel eg því fjárveitinguna, sem hér er um að ræða, sjálfsagða, einkum af því, að hún var sérstaklega veitt konum og miðaði í þá átt að gera þeim eigi lægra undir höfði en karlmönnum.
Í sambandi við þetta Vil eg minnast á, að eg álít rétt að veita stúdentafélaginu styrk til þess að geta sent mann til fundar, sem boðaður hefir verið í Osló í haust. Nefndin hefir af misskilningi ekki tekið fjárveitinguna upp í fjáraukalögin, áleit að það heyrði undir fjárlögin. En það er augljóst, að svo er ekki, því fundurinn á að haldast í haust. Tel eg vel farið, að varið sé fé til þess að Ísland komi fram út á við. Höfuðóvinur okkar í allri framsóknarbaráttunni hefir verið, hvað aðrar þjóðir hafa lítil kynni af okkur. Erlendar þjóðir þekkja oss alls ekki, ef eg undantek nokkra kaupmenn í Kaupmannahöfn, sem lært hafa lagið á því, hvernig þeir eigi að komast með sem hægustu móti í vasa okkar. Annars er svarta myrkur.
Fjögur atriði þykjast þó allir vita um Ísland: að þar er Hekla, að þar er Geysir, að þar búa Eskimóar og að Danir eigi landið.
Því fé er jafnan vel varið, sem veitt er til þess að auka þekkingu annara þjóða á landinu, og þori eg að fullyrða, að það borgast með um umbótum á verzlun og viðskiftum. Mun eg enn endurtaka það, sem eg hefi eitt sinn áður sagt, að verð á dönsku smjöri megi vel þakka Alberti Þorvaldssyni, er bar nafn Danmerkur um allan heim. En þótt hann væri Íslendingur, höfum vér enga hlutdeild haft í þeim gæðum, sem frægð hans hefði mátt leiða yfir þetta land. Verðum vér því að vera ljúfir á að styrkja til slíks verks þá krafta, sem vér eigum nú völ á. Um þetta atriði get eg því ekki verið samþykkur hv. þm. Seyðf. (V. G.). Aftur á móti um greiðslu á kostnaði við þingmannafund í vetur verð eg það að segja, að ef sá fundur hefir verið flokksfundur, fæ eg ekki skilið, þótt eg hafi hlotið lof fyrir lögspeki í dag, hvaðan heimild kæmi til þeirrar fjárveitingar.
Eg veit ekki, hvort eg hefi skilið nefndina rétt í því, er hún leggur til um Röntgens-áhöld til Vífilsstaðahælisins. Eg verð að telja þess fulla nauðsyn, að hælið fái áhöldin fyrr í dag en á morgun. Hitt játa eg, að ef hælið getur fengið áhöldin til láns þangað til fjárlögin eru komin á, þá má á sama standa.
Þá sný eg mér að Sunnmýlingunum. Þeir eru sjálfum sér sundurþykkir. Annar vill veita í notum þess, að maðurinn var nýtur, en hinn er reiður því, að veitt sé, af því maðurinn er nýtur. Þetta er erfitt. En það játa eg, að dæmalaus hæverska var það hjá háttv. 2. þm. S.- Múl. (G. E.), að blanda stúlkum sínum þar eystra inn í þetta mál, og vart mun hann hafa ætlað sér annað að launum en hýrlegt bros, er austur kæmi. En gamanlaust þykir mér það eiga illa við að amast við lítilli fjárveitingu handa vorri helztu stofnun, háakólanum, til að launa manni, sem jafndyggilega hefir staðið í stöðu sinni sem þessi maður.
Loks læt eg þess getið, að eg er samþykkur 200 kr. fjárveitingu til dýralæknisnáms. Það hefir sýnt sig, að dýralæknar eru hér alt of fáir, og mun eg því vera með fjárveitingum til þess náms, þar til er bætt er úr þeirri þörf.