30.07.1913
Neðri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (396)

7. mál, fasteignaskattur

Magnús Kristjánsson:

Það eru aðeins örfá orð, sem eg hefi að segja. Eg lofa því fyrirfram að vera stuttorður. Mér sýnist ekki veita af, því að svo langt hefir lopinn verið teygður. Eg sé ekki mikla ástæðu til að fara út í einstök atriði, enda skal eg ekki gera það. Eg hefi ekki orðið var við, að nokkurt atriði í áliti meiri hluta nefndarinnar né í ræðu háttv. framsögumanns meiri hlutans (Ól. Br.) hafi verið hrakið. Svo veigalitlar og þýðingarlausar virðast mér mótbárur, þær sem fram hafa komið. Eg hygg að sízt verði sagt að þetta frumv., sem hér liggur fyrir, sé til sérstakra hagamuna fyrir mitt kjördæmi, því að eftir mínum skilningi kemur fasteignaskatturinn þyngst niður á húseignum í kaupstöðum, vegna þess að það eru þær eignir, sem minstan arð gefa. En þrátt fyrir það finst mér að eg geti ekki forsvarað að leggja á móti frumvarpinu.

Hér eru nú á ferðinni ýmsar uppástungur um fjárframlög til ýmis konar nauðsynlegra fyrirtækja og stofana, sem ilt er að þurfa að hliðra sér hjá að sinna. Nú er t. d. farið fram á að bæta hag Landsbankans, með ríflegu fjárframlagi, og nú í fyrsta sinni, svo nokkru nemi, er sótt um styrk til sjávarútvegsins, sem ekki verður sagt annað um, en réttmætt sé að sinna, ef hægt væri. Þannig mætti halda áfram að telja. En eg fæ ekki séð, hvernig hægt er að verða við þessum kröfum, ef ekkert er gert til þess að útvega tekjur í skarðið. Og eg er sannfærður um, að þetta er heppilegasti vegurinn til þess. Það hefir víðtækari áhrif, en menn hafa gert sér grein fyrir, ef frumvarp þetta nær ekki fram að ganga Afleiðingin yrði sú, að annað hvort yrðu fjöldamörg nauðsynjamál að sitja á hakanum, eða fjárlögin að fara út úr þinginu með stórkostlegum tekjuhalla. Þetta eru ástæður, sem mér virðast svo mikilsverðar, að ekki sé horfandi í það þó að þessi fasteignaskattur kæmist á.

Að öðru leyti skal eg ekki fjölyrða um þetta, eg lofaði því í upphafi að vera stuttorður, og eg ætla að efna það.