30.07.1913
Neðri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (405)

7. mál, fasteignaskattur

Framsögum. minni hl. (Kristinn Daníelsson):

Eg ætla ekki að tala langt mál, en vildi að eins leyfa mér að gera nokkrar athugasemdir við það sem sagt hefir verið.

Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ól.) byrjaði ræðu sínu á þá leið, að hann undraðist það að við minnihlutamenn gætum verið Samdóma meiri hlutanum um breytingar á frumv., en vildum ekki fallast á aðalniðurstöðu málsins. Eg get ekki séð að það sé nokkurt ósamræmi í þessu. Eðlilegt, að geta verið samþykkur breytingum á frumv., ef það yrði að lögum, þótt eg óski ekki að það verði. Svo ætla eg að hlaupa yfir og koma að seinasta atriðinu í ræðu hans. Það var eitthvað á þá leið, að ástæður minni hlutans væru næsta lítilsverðar, og að ekkert hefði verið hrakið af ástæðum háttv. framsögum. meiri hl. (Ól. Br.). Á líka leið talaði háttv. þm. Ak. (M. gr.). Eg vildi benda á, að slík “attest„ eru engin rök í málinu sjálfu.

Þá kem eg að miðkafla ræðu hana, sem aðrir hafa nú þegar einnig minst á, aðdróttuninni um það, að mótstaðan gegn frumv. væri sprottin af því að það kæmi frá stjórninni. Hafi átt að beina þessu til mín — og það lítur út fyrir að svo sé, því að eg var einn búinn að tala þegar hana sagði þetta —, þá skal eg geta þess, að inn háttv. þingm. veit það vel, að eg hefi frá upphafi verið á móti því að þetta mál gengi fram. Eg skal leyfa mér að minna hann á það, að eg lét það beint uppi á 1. fundi skattanefndarinnar, og mun hann muna það, að þegar eg var spurður um, hvort eg ætlaði að kljúfa nefndina, svaraði eg, að eg ætlaðist ekki til að nefndin klofnaði þegar; óskaði að vinna með henni að breytingum á frv. Þetta er kannske af sama toga spunnið og það sem eg heyrði fleygt í gær, að “oppositionin„ ætlaði að fella öll stjórnarfrumvörpin, til þess að stjórnin geti skilið, að hún ætti að fara frá. Eg skal lýsa yfir því, að eg vísa þessari aðdróttun frá mér sem gersamlega tilhæfulausri. Eins og eg mun hafa einurð á að greiða atkvæði á móti hverju máli eftir sannfæringu minni, þótt það sé komið frá stjórninni, eina mun eg fylgja hverju máli, sem frá henni kemur, þegar mér líkar það. Og þegar eg er ráðinn í að láta stjórnina skilja, að eg vildi að hún færi frá, þá mundi eg hafa einurð á að gera það á beinni veg án krókaleiða.

Svo vil eg leyfa mér að gera örstuttar athugasemdir við ræðu hæstv. ráðherra. Hann komst svo að orði, að eg hefði gefið í skyn, að stjórnin hefði laumast að þjóðinni með þetta frumv. Það hefir mér aldrei dottið í hug að segja, en það er ekki því til fyrirstöðu, að það kæmi þjóðinni óvænt og óvart. Þá sagði hæstv. ráðherra, að ummæli mín um það, að skatturinn legðist þungt á einstaka menn, sérstaklega presta, væru bygð á misskilningi. Eg átti alla ekki við að það Væri aðalástæða mín, að hann legðist þungt á presta. Eg tók að eins dæmi, og bað jafnvel afsökunar á því, að eg mintist á það mál, sem snerti mig og stétt mína sérstaklega. En þrátt fyrir útskýringu hæstv. ráðherra, get eg ekki verið fyllilega sannfærður um, að skilningur hans á frumvarps-greininni sé réttur. Að minsta kosti var skilningi mínum ekki mótmælt í nefndinni, þar sem var góður lagamaður. Eg get ekki fundið annað en að það verði að breyta greininni, ef það á að vera meiningin, að prestssetrin og hjáleigur, sem prestar taka tekjur af upp í laun sín, séu undanþegin skattinum. En eg hafði í huga fleiri dæmi út af þessu. Mér datt í hug maður, sem eg þekki, og sem nú borgar engan fasteignaskatt af því eign hana er veðsett. Eg býst við að jörðin, sem hann býr, á yrði með húsi virt á 15–20 þús. kr., og yrði hann eftir þessu að borga 30–40 kr. fasteignaskatt, og er það ærið þungur skattur á mann, sem á ekkert.

Þá mintist hæstv. ráðherra á það sem bót á þessu frumv. að frá skattskyldum tekjum ætti að draga vexti af veðskuld og tekjuskatturinn minka við það. En eg held að það komi til að muna nauðalitlu. Segjum að maður skuldi 1000 kr., þá er rentan hér um bil 50 kr. og verða það því að eins 25 aurar, sem skatturinn minkar um. (Ráðherrann: Þetta er misskilningur). Nei, eg held að þetta sé réttur skilningur.

Eg er þakklátur háttv. framsögum meiri hlutans (Ól. Br.) fyrir undirtektir hans. Þær voru alt á annan veg en undirtektir hinna. Hann kannast við, að hér komi til greina ástæður með og móti, sem vega þurfi, svo að ofan á verði þær sem þyngri verða á metum. Hann mintist á það sem eg gat um, að menn væru að reyna að eignast ábúðarjarðir sínar, og skildi mig víst svo, að eg óttaðist að þeir mundu hætta því. En eg hugsa ekki að þetta myndi draga úr áhuga þeirra, svo að þeir vilji ekki kaupa jarðirnar, en þeim er þó íþyngt með þessu, því að þó að þeir njóti þessara góðu kjara, að borga 6% í 28 ár, þá hafa þeir þó meira að borga heldur en eftirgjald af jörðunum myndi vera í leiguábúð, og þar að auki þennan skatt.

Þá skal eg víkja nokkrum orðum að því sem háttv. þm. S.-Þing (P. J.) sagði, og skal eg viðurkenna, að hann talaði af þekkingu á málinu. Þó get eg ekki verið honum samdóma, þar sem hann sagðist sakna eignaskatts, því að þá hefði skatturinn orðið í sumum tilfellum þrefaldur. Enda hefir stjórnin kannast við, að hún hafi ekki séð sér fært að taka eignaskattinn með fyrir þá sök. Þá sagði hann og að það væri hugsanaruglingur að tala um, hvort þörf sé á nýjum sköttum; hér væri ekki um það að tala eða ekki aðalatriðið, að leggja á nýja skatta, heldur að bæta skattafyrirkomulagið. Eg held að það sé ekki hugsanaruglingur, að tala um að rétt sé að velja bentugri tíma til að bæta skattakerfið, og hygg eg að þjóðinni muni þykja það ófullnægjandi huggun, er hún finnur skatta þyngjast á sér, að það sé ekki annað en að verið sé að laga skattakerfið. Þá sagði hann enn, að það væri fjarstæða, að þetta kæmi þjóðinni óvart, og vildi sanna það með því, að sóknargjaldalögin hefðu verið tekin út úr frumv. skattanefndarinnar frá 1907. Mér virðist ekki heppilegt að vitna í sóknargjaldalögin, því að hvað sem annars er um þau að segja, þá er það víst, að þau hafa ekki unnið vinsældir þjóðarinnar, að minsta kosti ekki þar sem eg þekki til, svo að viðtökurnar, sem þau fengu, voru engin hvöt til að flýta sér að taka hin frumvörpin.

Þá kom sami háttv. þingm. með útreikning, sem átti að sýna mismuninn á sköttunum eftir núgildandi fyrirkomulagi og þessu, og fann hann það út, að þeir yrðu töluvert minni eftir frumv. Slík dæmi er hægt að setja upp á ýmsa vegu. Eg get bent á það, að fyrst var nú sú skekkja á útreikningi hans, að því er mér skildist, að fátækratíund, sem hann slepti, er enn ekki afnumin. Í annan stað taldi hann svokallaðan nefskatt, sem ekki kemur þessu Við, kr. 4,50 á hjónum á 20 hndr. jörð. Eg hygg, að á 20 hndr. jörð hafi hjónin af fleirum að gjalda en sér einum. En þetta kemur auðvitað nokkuð misjafnt niður, sumstaðar verður það hærra og sumstaðar lægra.

Þá vildi hann, að því er húseignirnar snertir, gera lítið úr þeim skuldum, sem á þeim hvíla. Sagði hann fyrst og fremst, að ekki væri lánað út á þær nema 1/3 verðs. Þetta er ekki rétt, heldur mun vera lánað út á 1. veðrétt 2/5, og oft er 2. Veðréttur notaður líka. Landshagsskýrslurnar sýna, að þinglýstar veðskuldir á húsum eru yfir 50% af virðingarverði allra húsa á landinu.

Þá hafði hann það eftir mér, að ekki ætti að leggja nýja skatta á þjóðina nema brýn þörf væri til. Það er alveg rétt, og eg tók það líka fram, að þjóðinni þyrfti að vera þörfin ljós, til þess að henni gæti orðið ljúft að ganga undir skattana. Og eg stend við þetta. Eg kalla það ekki hentugan tíma, ef ekki er knýjandi ástæða til að hækka skattana.

Þá sagði hann að síðustu, að eg hefði borið fyrir mig þjóðarviljann, og það er satt. Hann sagði líka, að eg þekti ekki þjóðarviljann betur en hann, og það er líka satt. En þar sem eg þekki til þjóðarviljans, þá er hann á þann veg sem eg sagði, og hygg að háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) þekki ekki annað til hans; því ef svo væri, þá býst eg við, að hann hefði þá skýrt frá því, en það gerði hann ekki.