30.07.1913
Neðri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í C-deild Alþingistíðinda. (406)

7. mál, fasteignaskattur

Ráðherrann (H. H.):

Háttv. þm. Snæf. (H. St.) gaf það í skyn, að það sem hann hefði aðallega á móti frumv. væri það, að það gengi á móti allri sanngirni, að leggja skatt á það sem ekki væri til. En hér er alls ekki lagður skattur á veðskuldir, heldur á fasteignir, án tillits til veðskulda, sem taldar eru á þeim hvíla. Þessu má ekki blanda saman. Þetta frv, er, eina og eg benti á áður, samið í sambandi við tekjuskattsfrumvarpið og þar er gert ráð fyrir að draga töluvert meira af tekjunum undan skattskyldu heldur en áður hefir verið gert og meira en skattamálanefndin hefir hugsað sér, til þess að gera skattinn létttbærari og jafna upp skatt af veðréttum fasteignum. Auk frádráttar á iðgjaldi af lífeyri, sem menn eru lögum samkvæmt skyldir tryggja sér, eru dregnir frá allir skatta,r og opinber gjöld, framfærslueyrir handa börnum o.fl. og auk þess vextir af öllum skuldum gjaldanda.

Þegar þessi hlunnindi koma í móti, er það bersýnilegt, að ekki er á neinn hátt hallað rétti manna, þó að veðskuldir, sem oft og einatt eru ekki til nema á pappírnum, sé ekki undanþegnar fasteignaskatti. Þetta er nauðsynlegt, til þess að menn geti ekki eftir vild skotist undan fasteignaskattinum. Þegar um litlar upphæðir er að ræða eða litlar fasteignir, nemur skatturinn einnig litlu. Það er fyrst þegar virðingarverðið fer að komast nokkuð hátt upp, upp í 10.000 kr. og þar yfir, sem fer að muna um skattinn. Og það er ekkert sem knýr þá menn, sem ekkert eiga umleikis, til að vera að burðast með stóreignir, allar í skuld.

Dæmi háttv. framsögum. minni hl. (Kr. D) um tekjulausan mann með 15.000 króna eigu, alla í skuld, er því einskis virði. Það er engin ástæða til að gera ráð fyrir slíku. En þeir sem hafa mikið umleikis, geta fremur neyðst til að hafa fasteignir í skuld, til þess að reka atvinnu sína, auðvitað í því skyni að afla sér tekna.

Við skulum nú líta á, hvaða munur verður á skattgjöldum samantöldum af fasteignaskatti og tekjuakatti, ef veðskuldir væru undanskildar fasteignaskatti, en enginn frádráttur fyrir vöxtum né tekjuskattinum, samanbornum við gjöldin eftir þessum frumvörpum, sem nú liggja fyrir. Tökum dæmi: Maður með 4000 kr. tekjum á hús, sem kostað hefir 10.000 kr. og hvílir á því 6000 kr. veðskuld. Væri nú veðskuldin dregin frá, ætti hann að borga fasteignarskatt af 4000 kr. 2%, og verða það 8 kr. Auk þess yrði hann að greiða 50 kr. tekjuakatt, ef ekki kæmi neitt til frádráttar. Það eru þá samtals 58 krónur. En eftir þessu frumvarpi þyrfti sami maður að borga fasteignarskatt af öllu húsverðinu, 10.000 kr., sem yrði 20 kr., en frá skattskyldri tekjuupphæð dregst renta af skuldinni — sem nú er 6% þ. e. 360 krónur. Skattskyld tekjuupphæð yrði þá, án tillits til annars frádráttar, 3640 kr. og tekjuskattur þar af 42 krónur. Það verður þannig í alt 62 kr. Munurinn er þá allur einar 4 kr., sem skatturinn er minni ef veðskuldin er dregin frá. Og þessi munur verður enn þá minni ef tekjurnar eru hærri. Hafi maðurinn í dæminu hér að ofan 5000 kr. tekjur, þarf hann að gjalda 83 kr., ef þess í 6000 kr. veðskuld er dregin frá til fasteignaskatts, en sé hún ekki dregin frá þar, heldur vaxtaupphæðin dregin frá skattskyldri tekjuupphæð, þá 85 kr. Munurinn er þá orðinn að ein- 2 kr. Stígi nú tekjurnar enn þá hærra, svo að þær séu 6000 kr. eða þar yfir, þá græðir maðurinn á nýja fyrirkomulaginu; hann borgar lægri fasteignaskatt og tekjuskatt samtals, heldur en ef fylgt væri gömlu reglunni. Það nær því engri átt, að hér sé verið að leggja sérstakan skatt á veðskuldirnar eða beita neinu ranglæti við þá, er reka þurfa atvinnu sína með fasteignalánum, er nokkru nemur.

Þá sagði sami háttv. þingmaður, að alþjóð hefði búist við að málinu yrði ekki hreyft á þessu þingi. En eg vil, auk þess sem áður hefir verið sagt um þetta atriði, minna menn á, að skattanefndin frá 1911 benti á það í álitsskjali sínu, að hvað sem öðru liði, þá yrði að breyta tekjuskattslögunum sem allra fyrst. Það var öllum ljóst, sem um fjármál höfðu að fjalla, að það mátti ekki dragast lengur.

Þá gat hann þess, að hefði stjórnin verið svo hugulsöm, að skýra frá því fyrir þingmálafundina í vor, að þessi frumvörp ættu að leggja fyrir þingið, þá mundi málið horfa öðruvís við nú. Þessi ásökun kemur ekki frá honum einum. Eg hefi áður fengið að heyra það, að margir álíta, að stjórninni beri að senda þingmönnum stjórnarfrumvörpin löngu áður en hún leggur þau fyrir þingið. En þar til er því að svara, að slíkt er ekki síður í neinu landi, enda væri ómögulegt að koma því við, því að frumvörpin eru oftast alls ekki tilbúin fyrri en rétt áður en ráðherra siglir með þau á konungsfund, og eg efast um að það sé einu sinni stjórnskipulega rétt að birta frumvörpin áður en konungur er búinn að gefa samþykki sitt til að stjórnin leggi þau fyrir þingið úr því að slíkt er heimtað.

Það er annars merkilegt, að þessari kröfu skuli að eins vera haldið fram viðvíkjandi stjórnarfrumvörpum. Hvers vegna er henni ekki haldið fram gagnvart þingmönnum líka? Það er þó oftast tiltölulega fátt, sem stjórnin kemur með af frumvörpum móti þeim aragrúa af þingmannafrumvörpum, sem dembt er inn á þingið í tíma og ótíma. Ekki þurfa þingmenn að biða eftir neinu konungssamþykki. Hvers vegna birta þeir ekki eitthvað af þessum nýmælum og réttarbótum, sem þeir eru að unga út og enginn veit af fyr en þeim einn önnum kafinn erfiðisdag er útbýtt hér í þingsalnum. Var kannske skýrt frá því fyrir fram í fyrra, að l. þingm. Rvk. (L. H. B.) ætlaði sér að koma fram með lotterífrumvarpið til þess að bjarga landssjóðnum 2 Eg hefi ekki orðið var við það. Og eg hefi aldrei getað skilið ástæðuna til þess, að slík frumvörp eigi fremur að eiga rétt á að fara huldu höfði fram eftir öllu þingi, heldur en stjórnarfrumvörpin að bíða þingsetningar.