30.07.1913
Neðri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (408)

7. mál, fasteignaskattur

Framsögum. meiri hl. (Ólafur Briem):

Eg vildi að eins stuttlega leyfa mér að drepa á þær 6 breytingar, sem meiri hluti nefndarinnar fer fram á. Af þeim eru að eins 3 efnisbreytingar:

Fyrsta efnisbreytingin er við 1. gr. frumvarpsins, og fer fram á það, að í stað þess að eigandi samkvæmt frumvarpinu að eins getur krafist endurgjalda á 1/3 skattsins af leigjanda þar til nýr samningur er gerður, þá skuli eigandi geta krafist endurgjalds á helmingi skattsins af leigjanda uns nýr samningur er gerður. Að vísu er þetta bráðabirgðaákvæði og mun nefndin íhuga það nánara síðar.

Önnur efnisbreytingin er Við 2. gr. og fer fram á það, að orðin: Enn fremur eru undanþegnar fasteignaskatti húseignir og lóðir, ítök og hlunnindi, ef þetta nemur eigi alls 300 kr. virði í eign sama manns, falli burt.

Nefndinni fanst að það ætti að gilda ið sama bæði um hús og jarðir og því þyrfti ekki að vera að setja lágmarkið upp í 300 kr., að því er sérstaklega snertir húseignir, heldur væri rétt að miða þar við sama lágmark og við jarðeignirnar, sem sé 100 kr. Heildarinnar vegna er betra að miða við 100 kr. Taki maður t. d. fjölskyldu — mann með 4 börnum —, er á hús, sem er 1000 kr. virði, þannig að börnin eiga hvert um sig jafnan hlut í húsinu ásamt föður sínum og eign hvers barns um sig er þá 200 kr. Eftir frumvarpinu ættu þau þá ekki að greiða neinn fasteignaskatt af húsinu, en slík undanþága sýndist harla ástæðulaus og tilgangalítil.

Þriðja efnisbreytingin er við 5. gr. frumvarpsins. Í nefndri grein stendur, að fasteignaskattur skuli í tvö ár frá gjalddaga ganga fyrir öllum veðkröfum í eignum þeim, er hann hvílir á. Nefndinni finst hér helzt til langt farið og þykir nægilegt að Skatturinn hafi slíkan forgangsrétt að eins í eitt ár frá gjalddaga. Annars tel eg ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta mál að sinni.