30.07.1913
Neðri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í C-deild Alþingistíðinda. (409)

7. mál, fasteignaskattur

Bjarni Jónsson:

Svar nefndarinnar upp á spurningu mína í dag tel eg ekki fullnægt. Eg lagði þar til, að þessi ákvæði með 1/3 skattsins yrði slept og í stað þess miðað við hundraðatölu. Af samtali viðannan nefndarmann tel eg þetta ákvæði þarft vera, því annars verður hægt að fara í kring um lögin. Er eg því á móti 1. gr. frumvarpsins. Með því kemur fasteignaskatturinn niður á ábúendann, en yrði mín athugasemd tekin til greina, kæmi fasteignaskatturinn niður á eigandanum sjálfum. Vil eg svo ekki eyða fleiri orðum um þetta mál.